Áramót!!!
Gleðilegt nýtt ár og þakkir fyrir það gamla :)
Guðrún, Njörður og Dagmar litla komu til okkar i kalkún á gamlárskvöld. Hann bragðaðist nú bara ágætlega en þetta var frumraun okkar í eldamennsku á kalkún. Kvikindið var ansi stórt þannig að við eigum afganga fyrir viku hehe. Þegar leið á kvöldið komu svo Marcel og Julia (við fórum til þeirra á jóladag) til okkar. Rétt fyrir tólf þá fórum við upp í penthouse-id á efstu hæðinni og ætluðum út á svalirnar þar og horfa yfir miðbæinn. En því miður voru svalirnar læstar þannig að við komust ekki út en við sáum ágætlega út um gluggana. Það var nú ekki mikið að sjá, ein fúl raketta og búið!!! En nýju ári samt sem áður vel fagnað.
Annars taka kannski margir eftir því að íslensku stafirnir eru komnir inn.......... gott að bjóða svona tölvuköllum i áramótamat hehehehehe. Var víst eitthvað stillingaratriði, en nú getum við hætt að blogga á dönsku eins og Guðrún orðaði það :) verst að ég er orðin svo vön því að vera án íslenskra stafa að ég er í algjörum vandræðum með að skrifa þessa færslu, held ad ein færsla hafi sjaldan tekið eins langan tíma!!!!
En hér eru myndir frá áramótum.
Kv. SRS

0 Comments:
Post a Comment
<< Home