Jæja, helgin var bara ansi ábótasöm, allaveganna fyrir mig hihi. Ég fór til New Westminster með Guðrúnu í kjólaleiðangur sem heppnaðist svona líka stórkostlega. Frábær dagur :)
Á meðan fékk Hjalti heimsókn frá frænda sínum, honum Nonna Púlla, sem er staddur hér í Vancouver.
Var annars í æðislegum tíma áðan. Hann heitir language and literacy in kindergarten and primary years. Bekkurinn samanstendur af yngri barna kennurum og verður örugglega æði. Allaveganna allt sem mér finnst virkilega áhugavert eins og læsi hjá byrjendum og þróun læsis. Kennarinn var líka æðislega krúttleg gömul kona, minnti mig bara svolítið á kennarana í Kennó hihi. Alltaf svo gaman hjá svona kennurum. T.d. var okkur skipt í umræðuhópa með því að við drógum allar nammi úr poka og svo voru þeir sem voru með eins lit af karamellu saman í hóp! Ohh svo gaman hjá okkur yngri barna kennurum hehe (eitthvað sem öðru fólki finnst örugglega ansi nördalegt hehe)
Kv. SRS

0 Comments:
Post a Comment
<< Home