Boð í veislu!
Fengum boðskort inn um bréfalúguna í gær. Kanadíska parið, þau Kim og Chris, hér fyrir ofan okkur að bjóða okkur í Luau party á laugardaginn. Og það besta við boðskortið að það var skrifað á íslensku til okkar :) Rákumst á þetta fólk í lyftunni einu sinni og við Hjalti vorum eitthvað að tala saman. Þá spyr stelpan okkur hvort við seum að tala íslensku og við bara ,,ehh jááá!'' Þá kemur það í ljós að maðurinn hennar hann Chris bjó á Íslandi í þrjú ár og talar bara fína íslensku! Þvílík tilviljun að rekast á kanadískt fólk sem talar íslensku! Þau búa sem sagt ákkúrat hér fyrir ofan okkur í íbúð 1005 og við erum í 905..... fyndið! Við verðum nú að skella okkur í partýið, verst að nú getur maður ekki laumast við að tala saman á íslensku hehe!
Kv.SRS
Kv.SRS

0 Comments:
Post a Comment
<< Home