Sigga Rós og Hjalti

Wednesday, March 08, 2006

Óskar, ekki þó Sigurðsson!!!!

Jæja er ekki komið að hinni vikulegu bloggfærslu okkar. Ekkert mikið gerst svo sem nema við héldum Óskarsverðlauna teiti á sunnudaginn. Í fyrsta skipti sem við horfum á Óskarinn að degi til en ekki nóttu eins og heima! Okkar frábæru nágrannar komu í teitið, Chris og Kym og litla fjölskyldan (Guðrún, Njörður og Dagmar).
Það styttist óðum í að við förum heim og ekki laust við smá tilhlökkun hjá okkur. Vorum reyndar að bóka flug í gærkvöldi. Munum fljúga til Montréal og vera þar í nokkra daga, þá fljúgum við til New York og svo er það Ísland sem bíður okkar. Munum fljúga frá New York þann 7. maí og lendum á Íslandi snemma morguns 8. maí. Allt klappað og klárt :)
Kv. Hjalti og Sigga

0 Comments:

Post a Comment

<< Home