Sigga Rós og Hjalti

Friday, February 17, 2006

Sundlaugarferð!

Við ákváðum að skella okkur í sundlaugina í dag. Það var nú frekar fyndin reynsla. Við mættum í sundlaugina kl 16:10 en sundlaugin sjálf var lokuð fyrir almenning til klukkan hálf fimm. Við fengum nú samt að fara inn og var okkur bent á að gufubaðið væri opið. Jæja inn höldum við í búningsklefann. Þar var nú ekki gert ráð fyrir miklum líkamsþvotti áður en haldið er í laugina. Var ekki einu sinni sápa í sturtunum til að þvo sér.....enda fór fólk nú bara þurrt og óþvegið út í laug! Jæja, út úr búningsklefunum komu hundblautir og hreinir Íslendingar sem ætluðu sér að prófa gufubaðið. Það var niðri í einhverjum líkamsræktarsal. Við héldum nátturulega niður tröppurnar á sundfötunum einum fata, enda var ætlunin að fara í gufuna. Þegar niður var komið stóðum við eins og álfar innan um allt fólkið sem var að æfa í gyminu! Held að fólk valsi ekki oft um á sundfötunum einum fata, ætli það sé ekki æskilegt að vera með handklæðið utan um sig. En í gufunni sátum við þar til laugin opnaði fyrir almenning. Jæja við biðum þar til búið var að taka skiltin og við fengum leyfi til að fara ofan í. Brautirnar fyrir sundfólk voru ansi margar og mjög skipulagðar. Sem sagt var ein braut fyrir hæga sundmenn, önnur fyrir meðal hraða og svo fyrir þessa hraðskreiðu. Svo voru reglur um í hvaða átt á að synda, hvernig á að taka fram úr og þess háttar. Íslensku álfarnir vissu nú eiginlega ekkert á hvaða sundbraut þeir ættu heima og skelltu sér þess vegna á einhverja millibraut. Þar var nú ein kelling sem synti hægar en skjaldbaka og við vorum tilbúin í að beita björgunarsundinu ef með þyrfti! Kannski við náum bara kröfunum í að vera á fast lane eða moderate lane hehe! Tókum nokkrar ferðir og fórum svo í heita pottinn. En svo var auðvitað komið að því að fara upp úr. Jú jú sumir þvo sér nú ekki, fara bara í þar til gerða klefa og skella sér í fötin og enginn sér neitt! Við notuðum íslensku tæknina á þetta, sturtan er til þess að þrífa sig ekki satt og svo þurrkar maður sér eftir á....áður en maður fer í fötin! Þetta féll nú held ég ekki vel í kramið hjá hinum sundmeðlimunum og fékk ég augngotur að launum. Ætli ég hafi ekki sært blygðunarkennd einhverra kvenna með öllu þessu stripperíi!!! En nú kunnum við á sundlaugina.....næst mun ég hlaupa hratt í sturtuna án þess að láta neinn sjá mig hihihihihi.
Kv. frá sundálfunum!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home