Sigga Rós og Hjalti

Monday, January 30, 2006

Jæja þá erum við komin heim eftir vel heppnaða ferð til Seattle. Fórum m.a. í museum of flight og á tónlistarsafnið og svo var auðvitað toppurinn.....NBA leikurinn, Seattle Supersonics vs. New Jersey Nets! Sonics unnu og það var kátt í höllinni!
En hér eru myndir frá helginni.
Kv. Hjalti og Sigga

1 Comments:

  • Það er aldeilis flækingur á ykkur - ekkert hægt að treysta á barnapíurnar haa :)

    Varð að segja þér að ég sá kjólinn þinn í glugga í Toronto. Hann var auðvitað flottastur af þeim öllum og staðsettur næst innganginum á besta stað. Hann var í skjannahvítu og geggggjjjjjjjjaaaaður!!!!!!!!!!!!

    Þú hefðir átt að sjá þessa búð, hún seldi borðbúnað: glös, diska og hnífapör auk alls konar brúðargjafa... Tékkkristall á Íslandi er eins og pulsubúð við hliðina á henni. Uppsetning var þannig að hver hópur af stellum fékk sér hringherbergi og þar voru kannski 30-40 mismunandi diskasett og það voru um 8 svona herbergi. Síðan sá maður brúðirnar með mömmum sínum vera að velja saman hnífasett við diskasettið og öll glösin með, og svo hlupu búðarkonurnar út um alla búð að finna til hlutina...já og verðin voru ekki í lægri kantinum - mig minnir að 60 stykkja sett hafi verið á $6000..uuufff...

    Heyri í þér seinna!!

    guðrún

    By Anonymous Anonymous, at 6:16 AM  

Post a Comment

<< Home