Sigga Rós og Hjalti

Tuesday, April 04, 2006

Jæja verður maður ekki að reyna að standa sig hérna í blogginu. Allaveganna er ég ansi kát og hress í dag. Var í síðasta tímanum mínum í gærkvöldi og skilaði síðasta verkefninu mínu.....sem þýðir að ég er bara búin í skólanum. Ég hafði skilafrest á einu verkefni til 15.apríl en ákvað bara að demba mér í verkefnið og kláraði það síðasta föstudag :) Ég er svo heppin að vera í próflausum kúrsum....en í staðinn gerum við bara stór og mis skemmtileg verkefni. Hjalti minn er hinsvegar í prófi á morgun og svo aftur eftir páska.
Svo styttist óðum í að maður geti náð í ferðatöskurnar niður í geymslu, vona að geymslukvikindi séu ekki búin að naga gat á þær hehe. Höfum eiginlega ekkert farið niður í geymslu síðan við komum blessuðum töskunum fyrir þar í haust.....efri hillan í fataskápnum okkar á það til að taka við dótinu sem ætti nú eiginlega best heima í geymslunni!!!! Merkilegt alveg hvað maður getur alltaf sankað að sér miklu dóti. Við vorum ekkert með þegar við komum hingað en núna....úff gott að skólinn er búinn því þá get ég hreinsað út úr skápnum okkar :) Já maður þarf alltaf að geyma allt....þó að hlutirnir séu varla geymslunnar virði! Einhvern veginn líður manni alltaf betur þá.....þ.e.a.s þar til maður þarf að taka geymslusvæðið í gegn :)
Vorkveðja, SRS

2 Comments:

  • Til hamingju með að vera búin í skólanum Sigga mín.
    Svo fer nú heldur betur að styttast í að þið komið heim. Hlakka til að sjá ykkur:)
    kv. Herdís litla systir

    By Anonymous Anonymous, at 5:32 PM  

  • Takk fyrir það....verð að viðurkenna að þetta er ansi ljúf tilfinning og nú bíð ég óþreyjufull eftir Íslandinu góða :)

    By Blogger Sigridur Ros, at 5:53 PM  

Post a Comment

<< Home