Sigga Rós og Hjalti

Monday, March 20, 2006

St. Patrick’s Day

Jæja, hér erum við enn......fólk farið að krefjast frétta af okkur.
Nú frekar lítið að frétta.....skólinn er að klárast eftir tvær vikur og svo eru prófin. En samt sem áður ákváðum við að fagna St. Patrick’s Day sem var víst á föstudaginn. Fórum snemma morguns í gær með Chris og Kym niður í bæ þar sem var heljarinnar skrúðganga og írsk stemning. Mjög skemmtilegt og mikið mannlíf. Alls kyns kynjaverur voru þar á stjái, bæði mennskar og í dýralíki. Veðrið var hreint út sagt frábært og nokkrar myndir voru teknar í tilefni hátíðarhaldanna. Þær má sjá hér!
Kv. Sigga og Hjalti

0 Comments:

Post a Comment

<< Home