Sumar og sæla

Í dag fórum við á ströndina. Fyrst fórum við á Spanish banks ströndina en röltum svo yfir á Jericho beach. Þar var eitthvað folkmusic festival og svaka fjör, tónleikar og læti. Virkilega fínt veður í dag og himininn alveg heiðskýr.

Annars á ég bara eina viku eftir í kúrsinum mínum, fer sem sagt í próf næsta föstudag og lýk þar með þessu námskeiði. Svo taka ritgerðaskrifin mín við fyrir hinn kúrsinn sem ég klára í byrjun ágúst. Hjalti byrjar á mánudaginn í sínu námskeiði. Svolítið skrýtið að vera svona í skólanum um hásumar. Manni langar ekkert alltaf að hanga inni að læra en þá er bara að skella sér út á svalirnar með bækurnar.....eða já, bara á ströndina. Góða við bækur að þær getur maður lesið nánast hvar sem er ;)

Annars ætla ég að skella inn myndunum frá því að við vorum í New York og Montréal. Svo eru hér líka nokkrar myndir frá Íslandsdvöl og nokkrar sólarmyndir frá Kanada....bara svona til að gera ykkur abbó í rigningarsuddanum heima hihi.
Kv. SRS

0 Comments:
Post a Comment
<< Home