Sigga Rós og Hjalti

Friday, July 07, 2006

Ultimate Frisbee

Lífið komið í fastar skorður hér í Vancouver. Skólinn minn byrjaður með skemmtilegum verkefnum og heimalestri!!! Er að taka kúrs sem heitir Specific Learning Disabilities og svo er ég að klára kúrsinn sem ég tók með mér heim til Íslands í vor, en í honum er ég að skrifa ritgerð um íslenskt skólakerfi, lestrarerfiðleika og mikilvægi skimunarprófa og tek þá fyrir íslenska skimunarprófið Læsi. Já, æl æl hugsa eflaust margir hihi en þetta er mjög skemmtilegt :)

Hjalti var búinn að lofa Kym að fara í Frisbee leik með henni í gærkvöldi. Við hjónin skelltum okkur með henni í eitthvað sem kallast The Ultimate Frisbee! Við vissum ekkert hvað þetta var, búin að ímynda okkur svona útilegu frisbee þar sem aðal brandarinn er "hlauptu Snati, hlauptu" fílingur. En þetta var nú ekkert útilegufrisbee þarna á ferð. Sem sagt voru fullt af liðum að spila frisbee á stórum völlum skv. reglum. Jú, við náðum þeim svona nokkurn veginn og svo var okkur skellt í liðið og í keppni út á völl. Úff, það er sko ástæða fyrir því að ég valdi frjálsar íþróttir á sínum tíma en ekki svona hörkuspil!!! Liðið okkar var mjög lélegt og tapaði feitt og ég fékk frisbee diskinn í hausinn (frá samherja!!!) og svo þrusaði ein stelpan í hendina á mér svo hún stokkbólgnaði og ég dró mig í hlé. Þessi sama stelpa fékk svo diskinn í fésið (frá þessum sama og þrusaði í hausinn á mér) og fór að grenja. Ég fór sko ekki að grenja þótt ég hefði meitt mig mikið (harka harka) og hugsaði bara með sjálfri mér "what goes around, comes around" hehe. Jæja, við komumst heim lurkum lamin. Ég með bólgna hendi og far eftir frisbee disk aftan á hálsinum. Held að ég spili þetta spil aldrei aftur, hef ekki taugar í svona hörku og líkamsmeiðingar. Annars held ég að yfir mér liggi einhver örlög á þriðja degi í Kanada....glöggir lesendur muna eflaust eftir skurðinum í þumalinn sem gerðist einmitt á þriðja degi í Kanada. Í gær endaði ég með bólgna útlimi!!! En svona er lífið í Kanada.
Kv. SRS

2 Comments:

  • haha
    greyjið

    Við eigum kalda bjórdós til að gefa þér í kvöld svo þú getir haldið henni að bólgnu höndinni til..

    Gott að það sé loksins komið líf á þessa síðu aftur - mætti halda að Ísland væri ekki internet tengt, og reyndar náði ég að ljúga því að einum í gær...Sagði honum að það væri svo erfitt að koma köpplunum í gegnum ísvegginn á snjóhúsunum okkar - og þegar tölvurnar okkar frjósa þá tölum við bókstaflega..Stupid americans ;)

    Ég fékk nú nostalgíu þegar ég las um latex klædda flugvallavörðinn sem káfaði á þér. Mjög eftirminnileg heimkoma frá Benidorm fyrir allnokkrum árum - þá 17 ára.. aldrei gaman að sjá þennan hanskakassa upp í hillu en ég þakkaði þó fyrir að hafa verið í samstæðum nærfötum..Leiðinlegt að sýna gamlar slitnar rósóttar bómullarnærbuxur við svona tækifæri..

    Sjáumst

    Guðrún

    By Anonymous Anonymous, at 7:41 PM  

  • Frjálsar rúla sko feitast! Lang lang besta íþróttin.

    By Blogger Harpa, at 4:57 AM  

Post a Comment

<< Home