Ferðalag framundan
Upp er runninn ferðadagur, ákaflega skýr og fagur!!!
Já, töskurnar orðnar smekkfullar og nú bíðum við bara eftir ferðinni. Höldum af stað til Montréal í kvöld (....já það er sko dagur hjá okkur núna hehe). Alltaf jafn skrýtin tilhugsun að vera að fara í fimm tíma innanlandsflug!!! En svona er að búa í stóru landi :)
Í gær hittum við Chris og Kym á Commercial Drive. Þau voru að flytja þangað og við urðum náttúrulega að kíkja á þau og fá túr um nýju íbúðina og Commercial Drive. Þetta var aldeilis góður dagur, röltum um, borðuðum, drukkum og spjölluðum. Verst að úti var grenjandi rigning, en þegar leið á daginn stytti nú upp og var komið frábært veður um kvöldið. Þegar heim var komið, tók svo við síðasti hluti pökkunarferlisins :)
Jæja, þá er bara vika í okkur til Íslands. Hlökkum ekkert smá til að hitta alla, stóra sem smáa, loðna og óloðna :)
Segjum bara, sjáumst á Íslandi :)
Kv. Sigga og Hjalti

1 Comments:
Góða ferð heim kæru vinir og ég tek undir með ykkur "Sjáumst á Íslandi :)"
guðrún og dagmar
By
Anonymous, at 6:16 AM
Post a Comment
<< Home