Sigga Rós og Hjalti

Thursday, January 19, 2006

Canucks!

Jebb, við erum að fara á hokkí leik í kvöld. Náðum okkur í miða á Canucks leikinn í kvöld. En alveg ótrlúlegt að við náðum miða á þennan leik því það seljast allir miðar upp á fyrsta degi. En tilviljanir eru eitthvað sem við lendum ansi oft í þessa dagana! Vorum í partýinu hjá Chris og Hjalti var að tala um að hann hefði verið að reyna að finna miða á Canucks en allt væri uppselt. Kallar þá ekki Chris í einn vin sinn sem er einmitt með tvo aukamiða á Canucks og tilbúinn að selja okkur þá!!!!! Já ótrúlegt alveg, við erum sem sagt að fara á flottan leik í kvöld. Það verður gaman að sjá þetta þó svo að maður skilji nú kannski ekki alveg leikinn mjéhjéhjé. En maður verður nú að prófa þetta meðan maður býr hérna í Kanada.
En spáið samt í tilviljun......við erum komin alla leið hingað til Vancovuer og fyrir ofan okkur býr maður sem talar íslensku og bjó á Íslandi!!!!!! Þetta er ótrúlegt! Svona er nú heimurinn lítill þrátt fyrir allt :)
Kv. Sigga Rós

0 Comments:

Post a Comment

<< Home