Heimsókn frá Seattle
Atli, vinur hans Hjalta úr verkfræðinni, og kærastan hans hún Ásdís komu í heimsókn til okkar á föstudaginn. Það var margt brallað. Fórum snemma af stað á laugardagsmorgun. Keyrðum um campus og kíktum á útisvæði museum of anthropology. Síðan var keyrt meðfram ströndinni og stoppað á Granville Island. Þar fórum við í bjórverksmiðju, fengum kynningarferð um framleiðslu bjórs og svo voru afurðirnar smakkaðar enda margar tegundir bruggaðar þarna. Kíkt var síðan á Granville Island markaðinn og keyptar karamellur og fleira. Eftir það var rúntað um miðbæinn og Stanley Park. Síðan fórum við í Capilano Suspension Bridge. Hrikaleg brú yfir 140 metra breitt gljúfur.....látum myndirnar bara tala sínu máli. Þetta var vægast sagt hrikaleg lífsreynsla fyrir Siggu lofthræddu mús, en ég hafði það yfir........en eftirskjálftinn var svakalegur!
Tekinn var smá rúntur og svo setið að snæðingi á White Spot. Dagurinn endaði síðan í góðu spili hér heima þar sem undirrituð sigraði og hafði gaman af :)
En hér eru myndirnar!
Kv. Sigga Rós
Tekinn var smá rúntur og svo setið að snæðingi á White Spot. Dagurinn endaði síðan í góðu spili hér heima þar sem undirrituð sigraði og hafði gaman af :)
En hér eru myndirnar!
Kv. Sigga Rós

4 Comments:
ahhhh ég fékk svita í lófana og stingi í puttana að sjá myndirnar frá brúnni...
Það var ÞYNnnnkaa á þessum bænum í morgun...úff Tequila bragðið er enn á vörunum. Takk samt fyrir gærkveldið og súkkulaðikanínan á ekki eftir að vera langlíf :)
/guðrún
By
Anonymous, at 5:48 PM
Takk fyrir okkur!
Þetta var kynngimagnað.
Varð reyndar svo um og of að ég gleymdi að giska á mína eigin umferð í HIT.
By
Sí-Atli, at 6:21 PM
þetta var allt með ráðum gert enda vann ég helgina í HIT
By
Hjalti, at 5:10 AM
Svik og prettir!
By
Sí-Atli, at 11:24 PM
Post a Comment
<< Home