Sigga Rós og Hjalti

Friday, July 21, 2006

Sumarskóli

Síðasti dagurinn í kúrsinum á morgun, sem þýðir......PRÓF í fyrramálið!!! Arrrg. Þetta er svona open book exam og það verða tvær spurningar á prófinu! Verður svona, "svaraðu því sem þér finnst próf." Sem sagt mjög loðið og maður fær tækifæri á að segja sínar skoðanir...eins gott að kennarinn fíli þær hehe. Já, bara tvær spurningar, sem þýðir langlokuritgerðarsvör. Kannski ágætt fyrir svona málglaða einstaklinga eins og mig, verst að ég skrifa eiginlega ekki alveg eins hratt og ég get talað hehehe. En loksins kemur málgleðin mín sér vel, hefur iðulega reynst mér vel í próftökum þar sem ég fæ autt blað til að romsa út úr mér alls kyns vitneskju :)
Annars er spáð svaðalegu veðri um helgina, 32 stiga hiti og læti.
Kv. SRS

0 Comments:

Post a Comment

<< Home