Páskafjör og próflestur
Páskahátíðin yfirstaðin með tilheyrandi áti og letilífi :) Við höfðum það ansi gott um páskana, danska svínið og litlu páskaeggin frá mömmu runnu ljúflega niður. Á páskadag fórum við í mat til Guðrúnar og Njarðar og borðuðum kanadískan kalkún, hittum mömmu hennar og bróður og kitluðum Dagmar :)
Nú er Hjalti á fullu í próflestri, próf þann 24. apríl. Á meðan bíð ég spennt eftir heimferðinni...aðeins 11 dagar í Montréal. Þá verður nú nóg um að vera en ég hlakka ekkert smá til að heyra flugfreyjuna í Icelandair vélinni segja "velkomin heim" eftir lendingu í KEF :)
Annars get ég nú eytt tíma mínum í að skipuleggja kúrsinn minn sem ég tek með mér heim, lesa sér til, undirbúa sig og svona. Fæ það skemmtilega hlutverk að grufla í íslenskt skólakerfi og skrifa um vandamál sem finnast í skólakerfinu! Já veit ekki alveg hvað þetta mun fela í sér en ég hitti supervisorinn minn á morgun og við ákveðum í sameiningu hvað ég tek mér fyrir hendur.
Kv. SRS

1 Comments:
Og það er ennnnnnnnnnnnnnnnn afgangur til af the Kalkún beast..dísus kræst.
Veistu, þú átt eftir að grenja af gleði þegar þú heyrir kveðjuna frá flugstjóranum...ég gerði það...þegar ég kom heim frá Frakklandi eftir 7 mánaða útiveru. Svefnleysi, flugþreyta og heimþrá er hættulegur kokkteill og greyjið fólkið sem verður á undan ykkur í röðinni í Duty Free - þið eigið eftir að ráðast á það ef þau eru eitthvað sein.
Njörður er að fara á morgun..oh my god.. og ég held barrrrasta að tíminn líði hraðar í þessari heimsálfu heldur en í Evrópu. Ég held nú að ég eigi eftir að sjá ykkur áður en þið haldið af stað..en annars Go go Hjalti í prófunum
kv.
guðrún
By
Anonymous, at 6:00 AM
Post a Comment
<< Home