Páskamaturinn sóttur
Tókum bílaleigubíl á miðvikudaginn og rúntuðum í dönsku búðina í North Vancouver. Náðum okkur í danskan hamborgarhrygg, danskt nammi og brauð. Ferðin tók ekki eins langan tíma og síðast enda vorum við á bíl í þetta skiptið. Einnig stoppuðum við í IKEA og keyptum borð til að hafa á svölunum í sumar.
Við röltum í þorpið okkar áðan...þar var allt opið. Eru ekkert að loka á föstudaginn langa hér...sem var bara gott fyrir okkur :) Á leiðinni mættum við litlum skátastelpum sem ruku til þegar þær sáu okkur og seldu okkur skátakex! Skátinn sjálfur keypti auðvitað kex, enda stelpurnar miklar sölukonur og fullvissuðu okkur um að kexið væri nú aldeilis gómsætt kex. Kexið er gómsætt og hver kexkaka merkt skátamerkinu.
Um páskana verður því japlað á skátakexi og dönsku svíni :)
Kv. SRS

0 Comments:
Post a Comment
<< Home