Sigga Rós og Hjalti

Tuesday, September 05, 2006

Komið að kveðjustund

Á laugardaginn fórum við Downtown og upp á Grouse Mountain. Þar uppi er heilmikið útsýni yfir Vancouver borg en eini gallinn er að til þess að komast upp á fjallið þarf að taka kláf sem er frekar hræðilegt fyrir lofthrædda....allaveganna að mínu mati. Chris og Kym komu svo í mat um kvöldið.

Í gær keyrðum við til Whistler, sem er eitt af frægustu skíðasvæðum N-Ameríku. Virkilega fallegt þorp þar og skemmtilegt að sjá. Það var hrikalega heitt í Whistler....35 stiga hiti og sól!

Í dag fórum við á PNE. PNE er svona skemmtigarður með tívolítækjum og ýmsum uppákomum. Herdís var aðalsmerki fjölskyldunnar í tækjaferðum....Hjalti fór í einn rússíbana og m.a.s. ég skellti mér í einn svona barnarússíbana sem var samt sem áður allsvakalegur. Ég tróð hausnum inn í bakið á Herdísi og lokaði augunum!!!!
Herdís var sem sagt hetja dagsins......endaði á að fara í The Hellevator, sem er svona fallsúla!!! Öskraði hátt og mikið en var sátt í lok dags.

Hlöðutúnsgengið fer síðan til San Fran í fyrramálið.

Myndir frá síðustu ferðum hér :)

1 Comments:

  • Hæhæ, ég er bara eitthvað að laumast..hehe
    Mér fannst skelfilegar myndirnar af klifurtrúðnum :S
    Sá samt vídeó sem var eins gott að þið voruð ekki búin að sjá fyrir tívolítækin, allavega gott að Herdís var ekki búin að sjá það...
    hér er linkurinn: http://view.break.com/149073

    By Blogger Brynja, at 1:45 PM  

Post a Comment

<< Home