Hárvesen og BBQ
Á síðustu þremur dögum er ég búin að vera með þrjá háraliti!!! Jebb, ákvað að lita á mér hárið sjálf.....endaði með því að fyrst leit ég út eins og Malibu Barbie sem var búin að liggja á ströndinni í 3 mánuði með sítrónu í hárinu! Ákvað að laga þetta og reyna að dekkja á mér hárið.....sem endaði með því að hárið á mér varð blátt!!!!!! Í gær gafst ég svo upp og fór á hárgreiðlustofu með derhúfu sem ég tók ekki af mér fyrr en ég sat í stólnum! Var látin skrifa undir skjal þess efnis að hreinsunaraðgerðirnar sem yrðu framkvæmdar á stofunni væru á mína eigin ábyrgð og ég gæti ekki farið í skaðabótamál ef útkoman yrði ekki eins og ég byggist við!!! Já, velkomin til N-Ameríku hehe. En blái liturinn var þveginn úr með skæðri efnablöndu og hárið svo litað í dekkri tón. Sem sagt lít ég ágætlega út núna :) og því miður Brynja, þá tók ég ekki mynd af bláa hárinu hehe. Allaveganna lærir maður nú sína lexíu og reynir ekki að lita hárið á sér heima við ;)
En hárgreiðslukonan sagði allaveganna að þetta gerðist mjög oft og meira að segja hafði systir hennar lent í einhverju svipuðu og endað með appelsínugult hár og sú vann meira segja á hárgreiðslustofu....þannig að mér leið nú aðeins betur með þetta allt saman hehe. Hárkellan horfði einnig á Rockstar og talaði um að Meegnííí væri rosa góður. Auðvitað verður maður kátur að heyra þetta, enda erum við Rockstar aðdáendur númer eitt og höldum með Magna....enda almennilegir Íslendingar hehe.
Í gær var okkur boðið í BBQ til Chris og Kym á Commercial Drive. Þar var einnig Kevin, vinur þeirra, og svo komu tveir Íslendingar í boðið líka...já ég veit Íslendingar! Þau heita Jón Þór og Kristín Marta. Jón Þór er í kokkanámi og er nýkominn hingað til Vancouver og Kristín Marta var að heimsækja hann. Kristín Marta er vinkona Chris síðan hann var á Íslandi fyrst árið '98. Hann kynntist henni þegar hann kom fyrst til landins og var í Reykjavík. Þannig að það voru endurfundir hjá þeim :) En skemmtilegt kvöld og var Chris kallinn upp á sitt besta eins og vanalega hehe :)
Kv. SRS

Íslendingar og Íslandsvinir við kortið af Íslandi sem Chris er með í stofunni hjá sér :)

Chris og Hjalti að leika auglýsinguna um Egils Gull bjórinn....gerður fyrir íslenskar aðstæður!

0 Comments:
Post a Comment
<< Home