Sigga Rós og Hjalti

Monday, August 21, 2006

Farin í hundana!!!

Ég skilaði loks inn lokaafritinu af verkefninu sem ég hef verið að vinna að í sumar. Loksins búin að lagfæra það sem lagfæra þurfti og ná sambandi við blessað Menntamálaráðuneytið varðandi nokkur atriði sem kennarinn minn hafði gríðarlegan áhuga á að vita! Ég skutlaðist því upp í skóla á föstudag til að skila verkefninu. Það fyrsta sem tók á móti mér á skrifstofu prófessorsins var hundkvikindi! Þeir sem mig þekkja vita að ég hef óbeit á þessari dýrategund og var ég því ekkert voðalega glöð að sjá þetta kvikindi koma askvaðandi á móti mér. Hundurinn var þvílíkt ánægður að loksins væri smá líf á skrifstofunni....annað en æsispennandi rannsóknir hehe. Ég spjallaði sem sagt við kennarann minn og á meðan sleikti hundurinn á mér hendina, þefaði af rassinum á mér og sleikti svo tærnar á mér svo mikið að þær glönsuðu. Ég varð auðvitað að þykjast líka við hundkvikindið......enda kann maður nú að vera kennarasleikja og ekki getur maður sýnt manneskjunni sem gefur manni einkunn að hundurinn hennar sé nú frekar andstyggilegur hehe. Þannig að ég stóð af mér mitt fyrsta hundaslef! En ohh my hvað ég var fegin að komast burt ;)
Helgin var letihelgi!!! Gerðum nú ekkert mikið, fórum á ströndina í tvo, þrjá tíma í gær og í dag. Yndislegt veður og frábært að láta sólina grilla sig.
Svo styttist í heimsókn frá Íslandi. Hlöðutúnsgengið er væntalegt til okkar á fimmtudaginn.
Kv. SRS

0 Comments:

Post a Comment

<< Home