Sigga Rós og Hjalti

Saturday, September 02, 2006

Okanagan

Þriðjudagskvöld var að sjálfsögðu Rockstar partý Íslendinga. Guðrún, Njörður, Dagmar og Jens, bróðir Guðrúnar komu til að horfa á Magna í ofursjónvarpinu okkar ;) Að sjálfsögðu var svo kosið fram á nótt eins og sönnum Íslendingi sæmir ;)
Á miðvikudag fórum við í ferðalag í Okanagan dalinn. Það er mikill víndalur, ræktuð vín og ávextir og svakalega fallegt þar. Við gistum fyrstu nóttina á B&B í Osoyoos hjá þeim Louis og Diane, rosalega fallegt heimili og flott gisting. Fimmtudag var keyrt upp dalinn og smökkuð vín á vínekrum. Mjög gaman og falleg leið. Þá nótt gistum við í Kelowna hjá þeim Ed og Donnu. Það var líka mjög fínt. Í gær var svo keyrt heim til Vancouver.

Hér eru myndir :)

1 Comments:

  • Já! og draumabíll Siggu er svona skemmtilega framsóknargrænn!

    By Blogger Sí-Atli, at 7:39 AM  

Post a Comment

<< Home