Sigga Rós og Hjalti

Tuesday, August 08, 2006

Verslunarmannahelgin í Vancouver

Verslunarmannahelgin í Vancouver byrjaði með Stir Fry mat á vokpönnunni góðu :)
Guðrún, Njörður og Dagmar komu til okkar. Dagmar varð auðvitað þreytt þegar líða tók á kvöldið og ég ákvað að reyna að svæfa hana í rúminu okkar. Hún ætlaði nú ekkert að gefa sig strax, enda glens og gaman frammi......eeeeen þar sem tveir þrjóskupúkar koma saman þar vinnur Sigga, drottning þrjóskunnar ;) Sko, maður gefur sig nú ekki hehe. Dagmar fékk síðan að sofa hjá okkur á föstudagsnóttina, var pínu hissa þegar hún vaknaði en alveg sátt. Ekkert smá ljúft barn :)
Í gær fórum við á Gay Pride skrúðgönguna. Dagmar sætamús kom með okkur. Hún var nú ekkert yfir sig hrifin af þessu, held að hundurinn við hliðina á kerrunni hafi verið mun áhugaverðari!!! En allaveganna byrjaði gangan á að keyrandi komu Dikes on Bikes, sem sagt lesbíur á mótórhjólum trylltu lýðinn :) Síðan voru vagnar með hinum og þessum samtökum eða bara litskrúðugu fólki, nudist society, menopausal old bitches, dansandi berir kallar ofl og ofl. Ansi öflug skrúðganga enda stóð hún í tvo tíma.
Annars erum við Hjalti búin að vera góðum æfingabúðum um helgina......Hjalti orðinn ansi góður í að keyra kerrur í mannþröng og upp brekkur!!! Alveg með taktana á hreinu :)
Í dag fór Hjalti með Nirði að veðja á hesta.....endaði að vísu í 6 dollara tapi. Á meðan tróð ég mér með Guðrúnu í grillveislu hjá skólafélögum hennar hehe, rebbalegt :)
Kv. Rebbi Refarass

2 Comments:

  • Takk enn og aftur fyrir litla barnid..
    Mamma hans Njardar spurdi hann hvort Dagmar vaeri buin ad eignast fosturforeldra og eg held ad thad se naer lagi :)

    Gudrun

    By Anonymous Anonymous, at 9:21 PM  

  • Hahahahaha.
    Spurning hvort ömmunni hafi litist jafnvel á skemmtiatriðin sem við buðum upp á, ehemm mjög svo þroskandi að sjá litríkt mannlíf, bera kalla og dansandi magameyjar!!! Og svo skilað heim...skreytt fjólublárri hálsfesti hihi. Fjúff, maður þorir varla að segja frá þessu hihi.
    Kv. SRS

    By Blogger Sigridur Ros, at 10:38 PM  

Post a Comment

<< Home