Sigga Rós og Hjalti

Thursday, March 01, 2007

Helgin

Hittum Chris og Kym um síðustu helgi og fórum á Vancouver Police Museum, eitthvað sem Hjalta er búið að langa að gera lengi. Ég er hinsvegar ekki mikil safnakona, finnst þau heldur leiðinleg...sérstaklega þessi sem eru með miklu lesefni við hliðina á hverjum hlut. Mætti halda að ég væri ólæs á svona söfnum, hef einfaldlega enga þolinmæði í svona lestur. Nokkuð erfitt þó fyrir kennslukonu að viðurkenna takmarkaðan safnaáhuga...eeeen svona er maður bara úr garði gerður! Held að mitt uppáhalds safn fyrr og síðar hafi verið dýrasafnið á Selfossi þar sem mátti sjá uppstoppuð hross og tvíhöfða lamb. Þetta skemmtilega safn var nú flutt einhverntímann...hvar skyldi það eiginlega vera staðsett núna - ég hef barasta enga hugmynd um það!
Jæja, Police museum var svona allt í lagi, ekkert spes, bara svona venjulegt safn og auðvitað með lesefni við hvern hlut :) Ætlunin var svo að halda á ljósmyndasýningu í Vancouver Art Gallery en því miður þá áttuðum við okkur á því að það lokaði klukkan hálf fimm og við hefðum því ekki fengið nógu mikinn tíma þar inni. Þá þurfti að finna eitthvað fyrir stafni. Þegar þar var komið við sögu, þá höfðu skötuhjúin Mel og Neil slegist í hópinn og var ákveðið að fara í BC place á svokallað Home and Garden show. Ágætis sýning svosem en kannski einum of mikið af sölumönnum sem allir voru að reyna að selja þér bestu leiðina til þrifa með töfratuskum og klútum.
Eftir heimilissýninguna var haldið á Blue Water Cafe í Yaletown, sem er nú held ég hinn mesti uppastaður sem ég hef farið á! Sem dæmi um það má nefna að fyrir aftan okkur sat gamall kall með tvítugri stúlku...pottþétt svona fylgdarþjónustudæmi þarna á ferð hehe ;) Jæja, við pöntuðum eitthvað sjávardæmi og borinn var fram sirka einn munnbiti af hverjum rétti, ansi litlir skammtar þar á ferð. Verð nú að segja að þetta var nú soldið framandi. Byrjuðum á ostrum sem Hjalta fannst góðar en mér ógeðslega slepjulegar og fannst bragðast eins og sjór!!! Eftir það komu litlu réttirnir, kolkrabbi, smokkfiskur, makríll, síld og síldarhrogn, marglytta og þarasalat. Hjalta fannst þetta nú ágætt nema marglyttan (hmm skrýtið), mér fannst þetta hinsvegar hreint út sagt ógeðslegt enda á ég í miklum erfiðleikum með að éta eitthvað sem er slepjulegt. Smakkaði á marglyttunni og í hugann kom bara mynd af kvikindinu sveimandi um, errrr hrollur. Makríllinn minnti mig nú bara á Elsu vinkonu, enda notar hún Makríl í beitu þegar hún fer að veiða hehehe ;) Já, þetta var ansi framandi, held að við höldum okkur nú bara við kjötbollur og bjúgu í framtíðinni...maður verður þó saddur af því hehe ;) Held að það sé á hreinu að ég var ekki fiskur í fyrra lífi...eða var ég kannski fiskur....oooog vil þar af leiðandi ekki borða vini mína hehe ;)

Myndavélinni var skellt í töskuna um helgina og nokkrar myndir teknar svo þið munið nú hvernig við lítum út hehe. Virðist sem markmið mitt í þessari dagsferð hafi verið að heilsa sem flestum styttum hehehehe ;)
Hér eru myndir ;)

Kv.SRS

0 Comments:

Post a Comment

<< Home