Sigga Rós og Hjalti

Sunday, February 04, 2007

Dine out Vancouver

Í tilefni þess að það er Dine out tímabil í Vancouver var ákveðið að skella sér út að borða! Dine out er semsagt tími núna í jan og feb og margir veitingastaðir í Vancouver bjóða upp á þriggja rétta matseðla fyrir 15 eða 20 dollara. Þetta er gert því þetta er rólegasti tími ársins og nýta þá veitingastaðir tækifærið til kynna sig með þessu.
Við fórum með vinum okkar í golfskálann sem er hérna á UBC campus. Þar er hinn fínasti veitingastaður. Við fengum þriggja rétta máltíð á 15 dollara, ansi fínt bara, fengum m.a. BC lax í hunangssósu! Mjög gott. Eftir matinn náðum við meira að segja að fara í námsmannabíóið okkar og sáum myndina Stranger than Fiction. Mjög skemmtileg mynd.
Í dag ætlar Hjalti að hitta Chris á Commercial Drive. Í dag er nefnilega Superbowl Sunday!!! Já, karlmenn (og eflaust konur líka) koma saman og horfa á ruðningsbolta enda einhver meistaraleikur í gangi held ég! Annars hef ég nú lítið vit á þessu....og langar eiginlega ekkert mikið að koma mér inn í þetta hehe ;) Vil frekar horfa á spjótkast og spretthlaup mjéhjéhjé :)
En þetta er víst aðaldæmið, var það ekki á Superbowl þegar Janet Jackson "beraði" á sér brjóstið? Ekki veit ég hver á að koma fram núna, held ég hafi heyrt eitthvað talað um Marc Anthony og J.Lo.....sel það ekki dýrara en ég keypti það ;)

4 Comments:

  • uss Sigga......Amerískur fótbolti er æði.... er reyndar solið flókin, sá einu sinni þátt þar sem farið var yfir reglurnar og hefði ekkert skilið í þessu ef ég hefði ekki séð hann :)
    Skemmtilegt svona tilboðstímabil á veitingastöðum, mætti alveg vera hér :)

    By Blogger Vala, at 8:36 AM  

  • Sting upp á því að á næsta ári þegar úrslitaleikurinn í ruðningsbolta fer fram hittumst við allar heima hjá Völu og horfum á leikinn í beinni. Vala getur verið leiklýsandinn með reglurnar á hreinu, hahaha.
    Sigga það gæti verið gaman!!!
    Kv. Sigrún

    By Anonymous Anonymous, at 4:25 PM  

  • Hahahaha já þetta er alveg einstaklega flókinn leikur....það er líka alltaf verið að stoppa tímann, mér fannst allt vera stopp eftir smá "púst" hjá þeim köllunum. En lýst vel á að Vala taki að sér að útskýra reglurnar fyrir okkur hinum, þessum fáfróðu hehe ;)

    Eins gott ég seldi það ekki dýrara en ég keypti það.....það var sko engin J.Lo og Marc Anthony að koma fram í hálfleik heldur var það Prince kallinn sem tók lagið og dansaði í háhæluðu skónum sínum...eða var hann ekki hættur að heita Prins...eða kannski byrjaður aftur ohh fylgist ekkert með þessu!
    Man allaveganna þegar það var alltaf talaðu um "the artist formerly known as Prince!"

    By Blogger Sigridur Ros, at 6:35 PM  

  • þetta er samþykkt....."ofurskálin" að ári hjá mér :)

    By Blogger Vala, at 9:13 AM  

Post a Comment

<< Home