Leiðangur!
Þau undur og stórmerki gerðust í gær að frúin á heimilinu keypti sér gallabuxur!!! Já, margan skal kannski furða að þetta teljist til stórmerkari tíðinda hjá húsmóðurinni en hún hefur síðastliðin tvö ár verið á höttunum eftir gallabuxum sem passa!
Einhverstaðar á þessu tímabili ákváðu gallabuxnahönnuðir að finna upp á gallabuxum sem rétt ná yfir rassboruna en slíkar flíkur eru ekki taldar mjög fýsilegar fyrir virðulegar kennslukonur! Með tímanum hefur þó mittislínan á gallabuxum hækkað örlítið...er handviss um að konur hafi komist að í stjórn gallabuxnafyrirtækja, hverjum öðrum en karlmönnum dettur eiginlega í hug að búa til gallabuxur þar sem sést í helminginn af afturendanum!!!
En þrátt fyrir góðar hækkanir á mittislínum hefur frúnni ekki tekist að finna buxum sem passa og lendir alltaf í því að mittið gapir að aftan eins og gin á svöngum flóðhesti!!! Og það er ekki gaman að herða slíkt gin með belti!
Frúin strengdi því áramótaheit í ár.....kaupa eitt stykki gallabuxur sem passa og eru ekki með flóðhestagini í mittinu.
Haldið var því í leiðangur í gær. Karlinn dreginn með til að vega og meta, honum til ómældrar ánægju hehe ;) Búðirnar voru þræddar og buxurnar mátaðar. Fórum t.d. inn í Gap sem selur alls kyns snið og tegundir af gallabuxum. Þar mátaði kellingin ALLAR tegundir sem til voru í búðinni.....long ang lean, original, boot cut, curvy bla bla bla.....ekkert passaði því alltaf leyndist flóðhestaginið í mittinu. Þá var haldið í næstu búð en þar lenti mín á hrikalegum buxum enda stóð helmingurinn af nærbrókinni upp úr.....kannski ekki hentugar buxur til að vinna með ungum börnum ekki satt ;) Leiðin hélt áfram og skapið fór vel niður! Loksins álpuðust hjónin í búð þar sem kella dæsti og mátaði buxur. Hvað haldið þið, þær pössuðu í mittið og voru bara nokkuð flottar....jesssssss. Langaði helst að dansa stríðsdans inni í mátunarklefanum og syngja þjóðsönginn eins hátt og ég gat :) Var næstum búin að faðma afgreiðslukonuna en mér líkaði sérstaklega vel við hana því hún var með frunsu á sama stað og ég...undir nefinu :) Jiii hvað ég var ánægð, hamingjustuðullinn flaug upp :) Ekki skyggði það á hamingjuna að brækurnar góðu voru á útsölu og kostuðu einungis rúmar 2000 kr :)
Hjalti sá tilsýndar ágætis buxur í þeirri sömu búð, fann stærðina sína, mátaði og keypti!!! Gott að geta mátað eitt stykki...arrrrg :) Voru þær brækur einnig á tilboðsverði og fengum við því gallabuxur á okkur bæði fyrir 3000 kr :) Ekki amalegt það.
Frúin var svo svakalega ánægð með tilveruna að hún fann ódýran vor-jakka sem hún kolféll fyrir enda var hann vel grænn ;) Kannski soldið framsóknargrænn en hvað um það hehe :) Mun kannski líta út eins og ljóshærður álfur sem villtist af leið á Norðurpólinn hehe :) Vantar bara græna skó í stíl og þá er ég góð :)
Í dag verða étnar bollur með rjóma og súkkulaði, heimatilbúnar að sjálfsögðu þar sem Kanadamenn hafa víst gleymt því að það er bolludagur á morgun....Day of the balls hahahahaha.
Konudagurinn í dag, the womans day, sem er ansi heppilegt fyrir Íslendinga því Valentínusarblóm og súkkulaði er nú komið á útsölu...muhahaha ;)
Kveðja frá súkkulaðigrísunum :)

4 Comments:
keyptirðu þá ekki tvennar? en hvernig væri að setja inn mynd af skvísunni í buxunum og græna jakkanum :)
By
Brynja, at 6:46 AM
Váááá vá vá..
Innilega til hamingju með kaupin!! Þvílík gleði :)
Á einmitt einar svona borubuxur og er mikið að spá í að halda brennu og kveikja í þeim. Þær voru nefnilega fínar í mátunarklefanum en teygjast svo þegar maður notar þær usss.
chaio
gudrun
By
Anonymous, at 10:58 AM
Ég vil senda Hjalta mínar innilegustu samúðarkveðjur með ósk um að þessi slæma meðferð muni ekki hafa langvarandi áhrif á hann.
By
Anonymous, at 11:47 AM
hehe hann lifði þetta af þessi elska ;)
Mynd segir Brynja, sjaum hvað hægt er að gera í því ;)
By
Sigridur Ros, at 1:26 AM
Post a Comment
<< Home