Kominn tími á blogg!
Elsku amma Sigga mín átti afmæli í gær.....Til hamingju með daginn! Auðvitað var afmæliskaffi og sleikti ég út um þegar ég las bloggið hans pabba.....mmm sá fyrir mér karamelluköku og pönnsur ;)Annars fór ég að velta því fyrir mér í gær hversu oft ég hef þurft að stafa nafnið mitt síðan við komum til Kanada. Held ég hafi bara sára sjaldan lent í því á Íslandi....það er nú annað mál hér. Spurt er um eftirnafn....maður ryður því út úr sér án ð-sins auðvitað, "sigurdardottir." "What!!!" er yfirleitt svarið sem maður fær og þá þarf að stafa úff langt nafn. Fyrra nafnið þarf maður nú líka að stafa, fær yfirleitt sömu viðbrögð og seinna nafnið! Samnemendur mínir ofl hafa oft spurt mig að því hvernig nafnið mitt er sagt og þá segi ég þeim það á hreinni íslensku að sjálfsögðu. Þá horfir fólk á mig tómu augnaráði og spyr hvort að Íslendingar geti sagt nafnið mitt! Ég segi þeim að ég heiti gömlu, góðu íslensku nafni sem jú allir geti nú sagt mjög vel og stundum held ég að fólk barasta trúi mér ekki....trúir ekki að fólk geti í alvörunni borið nafnið mitt fram hehehehe :)
Hef hingað til ekki lent í erfiðleikum á Íslandi....meira svona að einu a-i er stundum bætt við Rósarnafnið og ég kölluð Sigga Rósa sem by the way ég þoli einstaklega illa!!! Fæ svona nettan hroll þegar ég er kölluð þetta hehe, veit ekki alveg af hverju, hann bara kemur!
Hjalti lendir oft í erfiðleikum með nafnið sitt og eiga menn yfirleitt í erfiðleikum með Hjalta nafnið. Stundum ná þeir að koma Kjartansson nafninu ágætlega út úr sér en Hjalti verður oft Hjiiilllti (með rödduðu l-i) eða Ajalti. Mjög fyndið :)
Maður verður því orðinn einstaklega lipur í stöfun á nafninu sínu þegar heim er komið. Eins gott að byrja ekki ósjálfrátt að stafa á Íslandi....."hvað er nafnið, Sigurðardóttir....S I G U R..... you get the point ;)
SRS

2 Comments:
kannast vid tetta vandamal, eg er ad aefa mig i tessu a saensku. Baedi ad stafa nafnid og lata folk bera tad fram gengur brösulega oft:)
By
Anonymous, at 1:13 PM
Ein orðin agalega útlensk, Sigga, því á íslandi myndi enginn spurja þig: hvað er nafnið!!! Þú yrðir væntanlega spurð: hvað heitir þú hahaha.
Bkv. Sigrún
By
Sigrun, at 9:53 AM
Post a Comment
<< Home