Sigga Rós og Hjalti

Saturday, January 27, 2007

Brandari dagsins!

Má til með að setja hér inn brandara úr Jórubókinni minni góðu sem pabbi gaf mér um jólin, Jóra er sem sagt dagbók Kvenfélags Selfoss! Þar sem ég er einstaklega léleg í að muna brandara og gleymi iðulega aðalatriðunum í brandaranum þá er alveg tilvalið fyrir gúbbífiska eins og mig að fá svona góðar dagbækur að gjöf og geta sagt brandara fram og aftur! En þessi fannst mér ansi góður ;) Eðal Kvenfélags-brandari :)

Læknisheimsókn
,,Kona kom með kornabarn til læknis í skoðun. Hann er svolítið of léttur, sagði læknirinn, er hann á pela eða brjósti? Brjósti, sagði konan. Láttu mig sjá brjóstin, sagði læknirinn. Hún fór úr að ofan og hann strauk og hnoðaði brjóstin á henni góða stund, og sagði svo: Það er engin mjólk í brjóstunum á þér.
Ég veit, sagði konan, ég er amma hans en ég er fegin að ég skyldi koma."
(Jóra, Dagbókin mín, 15. útg. 2007)

4 Comments:

  • hahahha þessi var rosa góður:)

    By Anonymous Anonymous, at 11:38 AM  

  • múhahaha......þessi er góður....soldill perri þessi amma samt!!!

    By Blogger Vala, at 2:14 PM  

  • Alltaf gaman að perrabröndurum. Þetta minnir mig á sögu sagða af vinkonu vinkonu o.s.frv. Hún var að leysa af sem símadama á læknisskrifstofu kvensjúkdómafræðings. Á þessum mánuði sem hún var þar var eldri kona sem kom vikulega í kjallaraskoðu. Þegar gamli ritarinn kom til baka þá spurði hún af varfærnilegri forvitni hvort hún vissi hvað veikindi greyjið gamla konan átti við. Hin svaraði "Veikindi, neibb enginn, gamla búin að vera ekkja of lengi og vill ekki kærasta en fær bara aðeins kikk út úr því að láta skoða sig."

    Og nú vona ég að engin börn undir 12 ára aldri séu að lesa þetta hjá þér.

    :)

    guðrún

    By Anonymous Anonymous, at 9:49 PM  

  • hahahahahahaha :)

    By Blogger Sigridur Ros, at 3:11 AM  

Post a Comment

<< Home