Margt að gerast!
Pósturinn Páll tók síðustu færslu eitthvað til sín...hin ágætu Shanga hjón hafa engan póst fengið síðan þá, sem ég held að sé met!
Skólinn silast áfram eins og endranær, tíminn þó svo fljótur að líða að fyrr en varir verður hann búinn!!! Ég þarf núna að velja mér dagsetningu til þess að halda kynningu fyrir prófessorum og öðrum í deildinni minni. Þetta er svona svipað uppbyggt og þegar verið er að verja ritgerð...bara kannski ekki eins stíft. Sem sagt kynnir maður innihald ferilmöppunnar sinnar sem maður vinnur á netinu og segir hvað maður lærði og þess háttar. Kannski soldið bla bla en ég er nú orðin ágæt á þeim vettvangi eftir alla blaðurkúrsana mína hérna úti. Held ég skelli mér í að vera með þeim fyrstu sem kynna, alltaf gott að ljúka sinni kvöl og pínu af sem fyrst og horfa svo á hina stressast og þjást en á meðan getur maður hlustað af athygli. Það er nefnilega oft þannig að þegar maður er á eftir einhverjum í röðinni að kynna þá hugsar maður bara um kynninguna sína og nær ekkert að hlusta alvarlega á þann sem er að tala fyrir framan mann!!! Já maður er ansi sjálfhverfur stundum!
Svo er það hið skemmtilega verkefni að finna myndlíkingu fyrir námið. He he já væmið hjá sumum stundum en ég hef sko ekkert væmið. Engar fairy godmothers hjá mér. Auðvitað þarf maður að tengja þetta við sitt frábæra land og einstöku þjóð, enda erum við Íslendingar best í heimi-það eru bara ekki allir búnir að fatta það ennþá! Mun ég því nota Víkingana sem mína myndlíkingu. Þeir lögðu í langferðir og voru könnuðir að kanna ný lönd og finna (eða kannski bara ræna!) gersemar ofl. Ég mun því lýsa mér sem víkingi sem lagði í langferð, kannaði ókunnar slóðir með því að viða að mér þekkingu sem ég mun síðan flytja með mér heim í víkingaskipinu mínu góða hehe. Er maður ekki hálfgerður víkingur alltaf í sér! Fór allaveganna einu sinni á Halloween ball og klæddi mig upp sem víking....ætlaði fyrst sem gyðja en hætti síðan við það....eheeem stutt á milli eða þannig! Fílaði mig einstaklega vel í víkingabúning, gömlum kartöflusekk frá afa Jóni, með víkingahatt á höfði og með útskorin sverð, skjöld og hníf úr pappa við mittið. Ekki var verra að hafa einnig horn við höndina sem hægt var að drekka ágætis mjöð úr....verst að það var helvíti vond lykt úr horninu enda af gömlum lampa frá bræðrum mínum!
Ég hlakka því til að segja samnemendum mínum frá myndlíkingunni minni....víkingalega að sjálfsögðu! Er miklu betra en blómagarðar og álfadísirnar þeirra muhahahahaha ;)
Svo er ég að auka við mig vinnu. Mun í febrúar taka fleiri vaktir á annari daycare, var hringt í mig í gær. Vantar fólk í daycare fyrir 18-36 mánaða. Skelli mér auðvitað í það. Svo fékk ég hringingu frá fólki sem vantar barnapíu nokkra morgna í viku frá klukkan 7-8. Þau eiga litla 4 ára stelpu sem er á daycare-inu sem ég vinn á. Ég tók því og mun passa hana í fyrramálið. Sé um að koma henni á fætur, borða og svoleiðis og labba svo með hana i Daycare-ið. Fínt, því svo byrjar vaktin mín stuttu seinna ;) Það er því nóg að stússast þessa dagana og dagbókin mín útkrössuð hehe.
Kv.SRS

1 Comments:
gott að þið hafðið nóg að gera og tíminn líður. Ég hef líka alveg nóg að gera og plönin um að gera e-ð hrannast upp hjá manni sem er bara hið besta mál:)
By
Anonymous, at 6:26 PM
Post a Comment
<< Home