Sigga Rós og Hjalti

Sunday, March 11, 2007

Daylight savings time

Jæja, þá er búið að breyta tímanum hérna úti þannig að nú munar "ekki nema" sjö tímum á okkur og Íslandi!!! Maður fékk því einum klukkutíma minni svefn en í staðinn fær maður dagsbirtu klukkutíma lengur á daginn. Þessi tímaskipti eru þó fyrr í ár, held barasta þremur vikum fyrr, en það er svo sem bara ágætt.

Á föstudaginn tókum við strætóinn niður í bæ og hittum á Chris og Kym á Canada Place. Þar var einhver sýning, ýmisleg listaverk úr dósamat. Allur maturinn verður síðan gefinn í foodbank. Þarna voru allskyns kynjaverur og kvikindi og allt úr dósamat, hvort sem það voru sardínur í dós eða túnfiskur. Við höfðum einmitt á orði að það vantaði algjörlega Ora baunir og fiskibollur í dós hahaha ;)
Eftir sýninguna fórum við á hinn indæla stað Denny's!!! Já, þetta er svona McDonalds dæmi nema hægt er að sitja í básum og það er þjónað til borðs. En þetta var upplifun fyrir mig því ég hef aldrei farið á Denny´s áður þannig að first time for me ;) Held það dugi alveg....allaveganna í bili hehe ;)
Eftir átið þá fórum við til vinar hans Chris, hans Daniels, í smá teiti sem hann var að halda. Hann býr á 12.hæð í blokk niðri í bæ og váááá með svakalega flott útsýni. Okkur leið nú samt ekkert rosalega vel þarna á svölunum hjá honum. Fannst handriðið hálf laust eitthvað og þetta var einhvern veginn alveg rooooosalega hátt, eitthvað svo miklu hærra en 9.hæðin okkar :) Já, lofthræðslupúkarnir við gætum ekki búið svona hátt uppi :)

Nú er grenjandi, grenjandi rigning. Búið að vera leiðindarigning síðustu daga. Vona svo sannarlega að það stytti upp bráðum. Kannski þýðir þetta bara að það verður þeim mun betra veður í maí, en þá koma einmitt mamma og pabbi. Var einmitt að ganga frá fluginu þeirra restina af leiðinni til okkar en þau fara frá Íslandi beint til Montreal og svo þaðan til okkar. Nokkuð gott bara, hlakka mikið til að fá þau :) Ekki oft sem maður fær heimsóknir nefnilega hehe ;) Kv.SRS

0 Comments:

Post a Comment

<< Home