Master of Engineering



Þá er Hjalti minn orðinn meistari, fékk gráðuna Master of Engineering in Project and Construction Management. Eins og síðast er pabbi búinn að blogga heilmikið um þetta á sinnu síðu.
Annars var þetta flott, nafnið hans Hjalta var borið fram sem Kjaaalti Joon Kajajaason!!! Sömu ræðurnar og síðast en það var allt í lagi því þetta voru fínar ræður. Frábært veður, sól og blíða og flottheit.
Héldum upp á þetta með því að skella okkur á ströndina í smá tíma, náðum góðum klukkutíma í sólinni. Svo var etið íslenskt lambalæri og fagnað hér heima :)
Síðasta nóttin okkar hér í íbúðinni. Strákurinn sem keypti öll húsgögnin okkar kemur í fyrramálið að ná í góssið og svo munum við bara skúra okkur út. Þá byrjum við sígaunalífið, förum til Vancouver Island á morgun og gistum tvær nætur. Þar ætlum við að hitta Mary frá Longview í USA, en hún var skiptinemi hjá foreldrum mömmu fyrir 36 árum síðan. Þá munum við sigla til Bandaríkjanna og keyra til Seattle og skoða okkur þar um og svo höldum við til Vancouver, gistum síðustu nóttina og svo er flug til Montreal þann 3. júní. Verðum þar í nokkra daga og lendum svo loks á Íslandi að morgni 7. júní.
Svolítið skrýtin tilfinning núna síðustu dagana, held að við föttum þetta ekki fyrr en við komum heim. En það verður gott og gaman að hitta alla aftur :) Eins og sagt var í ræðunum í dag, útskriftin markar endalok ákveðins kafla en upphaf annars:)
Það er fallegur himininn í kvöld, síðasta kvöldið okkar. Fullt tungl og skýin lýsast upp í tungsljósinu. Fallegt veður.

7 Comments:
Góða ferð heim, hlakka til að hitta ykkur í sumar :)
By
Brynja, at 11:37 AM
Til hamingju Hjalti og góða ferð til Íslands:) Við sjáumst svo í ágúst.
By
Hannarut, at 8:01 AM
Til hamingju Hjalti !! Hlakka til að sjá ykkur sem fyrst.
kveðja Vala
By
Vala, at 8:40 AM
Til hamingju Hjalti :)
Kv. Magga
By
Anonymous, at 8:45 AM
Innilega til hamingju með áfangann, bæði tvö!
By
Anonymous, at 9:26 AM
Til hamingju með útskriftina Hjalti.
Kv.
Daði
By
Anonymous, at 12:38 PM
takk fyrir góðar kveðjur
kv.
Hjalti
By
Hjalti, at 7:27 AM
Post a Comment
<< Home