Sigga Rós og Hjalti

Friday, May 25, 2007

Master of Education :)







Útskriftin var í dag og nú er maður loks orðinn meistari, þó ekki Jakob...mjéhjéhjéhjé ;)
Ég datt ekki í tröppunum en ein stúlkukindin lenti svo illa í því að hrynja niður tröppurnar á leið af sviðinu....greyið, lá þarna í hempunni og gat sig hvergi hreyft....neyðarlegt!!!

En dagurinn var flottur, sól og fínasta veður. Ég mætti klukkan 7 til að klæða mig í skrúðann og síðan var marserað í röð inn í salinn. Framburður íslenska nafnsins tóks með eindæmum vel og ég fékk skírteinið í hendurnar. Nánari lýsingar á deginu má bara lesa hjá honum pabba hér http://sigjons.blog.is/blog/sigjons/

Eftir útskrift fórum við upp á Grouse Mountain, sáum þar Lumber Jack Show ofl. Uppi á fjalli var enn snjór en mjög fínn hiti og allir með bóndabrúnku eftir daginn.
Svo var étinn íslenskur lambahryggur þar til við stóðum algjörlega á gati, yum yum :)

En hér eru nokkrar myndir frá útskriftinni
http://www.picturetrail.com/gallery/view?p=999&gid=16573600&uid=8997142&members=1

5 Comments:

  • Innilega til hamingju með áfangan elsku Sigga, þú ert vel að þessu komin og alltaf jafn glæsileg.

    Finnst orðið alveg ómissandi að kíkja hérna inn og fylgjast með ... ákvað loks að kvitta fyrir mig (má nú ekki mikið seinna vera)

    Kær kveðja
    Ragnheiður I. Jónsd.

    By Anonymous Anonymous, at 9:25 AM  

  • Innilega til hamingju með Masterinn Sigga mín, flottur árangur hjá þér!

    Knús frá DK,
    Dóra Hanna og strákarnir

    By Anonymous Anonymous, at 8:58 PM  

  • Til hamingju með daginn. Kv.Daði

    By Anonymous Anonymous, at 8:53 PM  

  • Til hamingju með árangurinn - bara flott ;)
    Kveðja, Magga.

    By Anonymous Anonymous, at 10:44 PM  

  • Til hamingju Sigga mín.
    Knús Hanna.

    By Blogger Hannarut, at 4:47 PM  

Post a Comment

<< Home