3 vikur eftir!!!
Eftir þrjár vikur verðum við komin heim til Íslands. Ótrúlega skrýtið! Tíminn búinn að líða svo hratt síðustu daga. Mamma og pabbi á leiðinni til okkar og útskriftin í næstu viku. Við erum búin að selja húsgögnin og afhendum þau bara þegar við flytjum.....craigslist kemur sér vel ;)
Við eigum nú samt eftir að kveðja Kanada með smá söknuði í hjarta. Maður fór frá Íslandi og setti líf sitt svolítið í biðstöðu á meðan við vorum í náminu. Held að við séum búin að upplifa allar gerðir af tilfinningum hérna úti, maður hefur sveiflast upp og niður eins og skopparabolti hehe. Fyrst leið manni hálf asnalega, alltaf með heimþrá og gátum ekki treyst á neinn annan en hvort annað. Núna erum við orðin vön og njótum þess að vera bara í félagsskap hvors annars, erum orðin ansi lipur í því að skemmta sjálfum okkur......spurning hvort að aulahúmornum verður vel tekið á Íslandi hehe.
Eftir þrjár vikur tekur öðruvísi líf við, þá tekur lífið á Íslandi við. Það verður gott að koma heim (sérstaklega af því að það stefnir ekki í vinstri stjórn hehe)en við eigum líka eftir að sakna lífsins í Kanada. Eins og Elise, litla vinkona mín sagði, varirnar eiga eftir að skiptast í tvennt, hægra megin verður bros en vinstra megin snýr vörin niður.....yndislega einföld útskýring á tilfinningum :)

1 Comments:
Akkurat sama tilfinning og við höfðum.
Ég er búin að lýsa yfir núna að besta lausnin væri að setja krók í Ísland og draga það að ströndum Vancouver. Þá væri ég sátt.
Vika þangað til við komum..
Ég er búin að vera að kíkja eftir þér á msn í heila viku núna. Virðist aldrei vera online þessa dagana..eða þá að ég er að kíkja á vitlausum tíma.
Eruð þið laus til að hittast á föstudagskvöldið næsta? Við gætum komið upp á campus og skellt okkur á jarðaberjamargaritas á Mahony´s :)
Nennirðu að senda mér símanúmerið ykkar til mín á gudrun@gudrundavids.com. Við höfðum það skrifað upp á vegg í Salmo Court en gleymdum sko að skrifa það niður.
Ef við náum ekki saman - þá hringi ég þegar við erum komin út..
By
Unknown, at 8:59 AM
Post a Comment
<< Home