Sigga Rós og Hjalti

Monday, May 14, 2007

Sænsk kosningavaka!

Horfðum á Júró í beinni á meðan við þvoðum gardínurnar okkar í gær. Alltaf gott að horfa á Júró og púa á ömurleg lög heima hjá sér!!! Eftir Júró tók við kosningavaka í beinni....ekki beint vaka hjá okkur þar sem það var nú bara dagur hér á Kanadaslóðum. Gátum þó ekki fylgst með öllu því við þurftum að drífa okkur í strætóinn og niður í bæ. Þegar við fórum úr húsi var stjórnin fallin og Frú Sigríður að drepast úr kosningastressi í strætónum. Fengum síðar jákvæð sms og þá leið frúnni nú mun betur enda orðið nokkuð ljóst að í æðum okkar hjóna rennur blátt íhaldsblóð!!!
Við fórum sem sagt út að borða með Chris og Kym. Fórum á spænskan stað og fengum tapas, mjög fínt. Síðan var haldið á staðinn The Commador þar sem sænskir peyjar voru að halda tónleika. Hljómsveitin heitir Peter, Björn og John en ég kýs að kalla þá Peter, Björn og Júúúúúhaaaaan!!! Til upphitunar fyrir sænska tríóið var stúlka sem spilaði einstaklega óskemmtilega tónlist og var vægast sagt stórfurðuleg. Hún var bara með hávaða, ég hélt fyrir eyrun á tímabili. Næsta upphitunarband var nú aðeins skárra en samt lélegt. Svo komu sænsku vinirnir og ekki voru þeir nú upp á marga fiska. Einum of mikið garg og graðhestaóhljóð fyrir minn smekk....spurning hvort að maður sé ekki bara að verða gömul geit hahaha.....minn smekkur meira svona Júró sko hehe ;)

En þetta var fínt því þegar við komum heim þá gat maður kíkt á mbl og séð úrslit kosninga.....og það án þess að vaka! Sko, stundum getur verið gott að vera sjö tímum á eftir hehe ;)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home