Sigga Rós og Hjalti

Saturday, June 02, 2007

Victoria - Seattle - Vancouver

Þann 30. maí skiluðum við af okkur íbúðinni. Náunginn sem keypti af okkur húsgögnin mætti sprækur og ruddi dótinu út í bílinn sinn, við þrifum okkur út og skiluðum svo lyklunum og sendum loka fingurkoss á blokkina. Svo byrjaði sígaunalífið, við fórum til Vancouver Island, tókum ferjuna frá Vancouver til Victoriu, höfuðborgar BC. Þegar þangað var komið hittum við Mary og Jim en mamma og Mary voru að hittast eftir 36 ár. Mary var skiptinemi hjá afa og ömmu en hún býr núna í Longview í USA. Kallinn hennar Jim kom líka með og svo kom dóttir þeirra, Kari aðeins seinna. Við fórum í blómagarðinn, fiðrildagarðinn, skoðuðum þinghúsið ofl ofl í Victoriu.
Í gær tókum við ferjuna frá Vancouver Island til Bandaríkjanna, frá Sidney til Anacortez. Þá hófst smá keyrsla til Seattle í djöfullegri umferð!!! Ótrúlegt hvað það er mikið af bílum hérna og auðvitað Reykjavíkurbragur á þessu, einn í hverjum bíl. En við komumst til Seattle og í gær fórum við í Space Needle, skutumst upp og fengum frábært útsýni. Svo er planið að fara á Pike Place Market í dag og eitthvað fleira og svo keyrum við til Vancouver í dag og gistum síðustu nóttina þar. Svo er bara flug í fyrramálið til Montreal.

En gamla geitin er víst komin upp í 28 ár....hélt að ég gæti átt afmæli hér úti án þess að fólk fattaði og yrði þar af leiðandi einu ári yngri hehe eeeeen það virkar ekki svo vel. Fékk afmælissöng í morgun og góðan afmælismorgunmat á hótelinu :)


4 Comments:

  • Til hamingju með daginn Sigga mín :)

    By Blogger Vala, at 8:17 PM  

  • Til hamingju með daginn gamla. Styttist í fertugsaldurinn ;)

    Kv. Daði og Magga

    By Anonymous Anonymous, at 1:27 PM  

  • til hamingju aftur med daginn:) vona ad tu hafir fengid smsid fra mer

    By Anonymous Anonymous, at 8:44 PM  

  • Til hamingju með afmælið :)!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

    Einnig vildi ég nefna fyrir ykkur Platinum fjölskylduna að Business Loungar eru opnir fyrir korthafa. Í Vancouver var loung-inn rosa flottur, frír matur og vín. Skemmtileg uppgötvun :)

    By Blogger Unknown, at 11:32 AM  

Post a Comment

<< Home