Búin í prófi :)
Prófið búið og þar með er einum sumarkúrsinum mínum lokið...jibbíííí. Prófið gekk bara vel, skrifaði 13 blaðsíður af miklum móð og romsaði úr mér vitneskjunni. Voru tvær spurningar. Ágætar spurningar sem ég hafði góð tök á, t.d. hljóðkerfisvitund barna, tengsl hennar við lestur og mikilvægi þjálfunar hennar í yngri bekkjum og fleira svona praktískt :) Allaveganna fæ ég einkunn á mánudag og verður forvitnilegt að vita hvernig manni gekk svo eftir allt romseríið :)
Hjalti mun eyða helginni í lestur enda próf framundan hjá honum. Annars er spáð svaðalegu veðri og hitinn núna kominn upp í 27 gráður og fer líklega yfir 30 gráður um helgina....Sweet :)
Kv. Sigga skrifkrampi!!!
Hjalti mun eyða helginni í lestur enda próf framundan hjá honum. Annars er spáð svaðalegu veðri og hitinn núna kominn upp í 27 gráður og fer líklega yfir 30 gráður um helgina....Sweet :)
Kv. Sigga skrifkrampi!!!

2 Comments:
Til hamingju med proflokin...er svona adeins pinku svolitid mikid ad ofundast ut i thig..enda ad mygla i vinnunni..
..ekki slaemt ad eiga sumarid frjalst i Vancouver...
heyrumst
gudrun
By
Anonymous, at 4:31 PM
hæhæ, takk fyrir síðast og takk fyrir innlitið á síðuna okkar :) ég trúi nú ekki öðru en að þú hafir brillerað á þessu prófi ;)
Þín verður annars sárt saknað á laugardaginn - en getur fengið skýrslu fljótlega!
kveðja,
Brynja
By
Brynja, at 10:25 PM
Post a Comment
<< Home