Klipping!
Í gær fengum við lánað hárklippisett hjá Guðrúnu og Nirði. Ætlunin var að ég myndi klippa Hjalta svo hann yrði nú glæsilegur í lokaprófinu á morgun ;) Þar sem þetta var nú frumraun mín hárklippingu karla þá varð þessi gjörningur nú frekar hlægilegur. Allaveganna byrjaði ég ágætlega svona fyrir utan fliss hjá mér og mikil afskipti frá Hjalta....."sko þú verður að passa línuna....haltu fastar...hey hvaða hljóð var þetta, aaa hvað gerðist..." Afrakstur klippingarinnar er sá að Hjalti er krúnurakaður!!!!! Mín fyrsta klipping endaði sem sagt í krúnurakstri, en hann er ansi vel krúnurakaður og hefur slíkur afburða krúnurakstur ekki sést hér í landi Kanadamanna og mun lengi vera í minnum hafður!
SRS
SRS

3 Comments:
Hæ hæ..Innilega til hamingju með giftinguna elsku Sigga mín og Hjalti..Hefði verið æðislega gaman að geta fagnað þessum degi með ykkur en það er ekki á allt kosið..Ég er búin að fá sendar myndir að heiman og er búin að skemmta mér mikið yfir þeim..
Sigga mín við erum alveg örugglega jafn færar með hárklippurnar því í fyrsta skiptið sem ég ætlaði að klippa Óla bróður fór það þannig að ég þurfti á endanum að krúnuraka hann..Kannski að við ættum að stofna bara stofu saman eða kannski bara halda okkur við það sem við erum að gera..Bestu kveðjur úr sólinni og hitanaum á Ítalíu..Hugborg Erla
By
Anonymous, at 10:04 AM
Heyrðu ég mæli 100% með Siggu Rós sem hárgreiðsludömu eftir að hafa fengið þessa fínu klippingu hjá henni í vetur :)..
Spurning um að panta tíma aftur. Kanntu nokkuð orðið styttur í hár??? Kannski hægt að finna leiðbeiningar um það á google hehe
sjáumst í kvöld...
By
Anonymous, at 7:27 PM
Takk fyrir kveðjuna Hugborg Erla.
Spurning um að halda sig bara við að klippa konur en ekki karla hahaha. Já, Guðrún....styttur, er það ekki bara svona klippi, klippi hviss bamm búmm hehe!!! Spurning hvað maður getur laðað fram úr erminni, örugglega til video af slíku mjéhjéhjé.
By
Sigridur Ros, at 10:35 PM
Post a Comment
<< Home