Sigga Rós og Hjalti

Friday, July 28, 2006

Smá update!

Gott að frétta af okkur. Prófið hjá mér gekk vel og fékk ég fína einkunn úr kúrsinum. Nú sit ég við tölvuna og er að klára ritgerð sem ég fæ 3 einingar fyrir. Ritgerðin er um lestrarerfiðleika og ég skrifa og skrifa af miklum móð og er endalaust að finna heimildir sem ég vil nota...úff held að blessuð ritgerðin sé alltaf að vinda upp á sig, verður bara bók á endanum haha. En betra að hafa nóg af heimildum heldur en engar :) Ég á einn kafla eftir og svo þarf ég að hitta leiðbeinandann minn og láta hana lesa yfir áður en ég skila af mér verkinu. Hjalti er á fullu í sínum kúrsi sem fjallar um alþjóðafjármál og klárast sá kúrs á föstudag í næstu viku.
Framundan er helgi. Chris og Kym ætla að koma í mat á morgun, í lambalærið sem við smygluðum til landsins múhahaha. Vonum að það bragðist vel :)
Annars er sumar í hámarki, sól og blíða alla daga :)
Kv. SRS

0 Comments:

Post a Comment

<< Home