Sigga Rós og Hjalti

Tuesday, September 05, 2006

Bankar!!!

Úff, maður er nú alveg að gefast upp á bankanum hérna úti. Fórum áðan og borguðum skólagjöldin í bankanum. Eftir veru Hlöðutúnsgengis var ansi mikið af klinki eftir (sko, þau kunnu ekkert á þetta klink). Við settum því klinkið í zip lock poka og ætluðum að láta telja það í bankanum. Ég skellti því pokanum á borðið og við báðum um að láta telja þetta og leggja inn á debetkortið. Stelpan sem afgreiddi okkur sturtaði úr öllu klinkinu á borðið og gerði sig líklega til að telja sjálf...með höndum og heila. Ég sagði nú við Hjalta að ef hún teldi þetta sjálf og notaði ekki vél þá skyldi ég sko hundur heita!!! Viti menn, eins og bankakerfið er nú apalegt hérna, þá er ekki til vél í bankanum sem telur klink....þannig að aumingja gjaldkerarnir hljóta að sitja sveittir við klinktalningu alla daga. Okkar stelpa neitaði síðan að telja þetta því það var svo mikil röð.....okkur voru því réttar einhverjar rúllur sem við áttum að telja sjálf í!!! Uss, nenntum því sko ekki. Klinkið er því enn í zip lock pokanum....spurning um að kaupa bland í poka hehe.
Og by the way, ég heiti hundur!!!!!!!
Kv.SRS

5 Comments:

  • Ég veit.
    Fara í kínabúðina sem ofrukkar mann alltaf, kaupa heila kerru og borga með klinkinu..Gott á þær hehe.

    Ég elska samt klink. Íslenskir hundraðkallar eru í uppáhaldi - þetta er eins og að eiga sjóræningjafjársjóð. Ég reddaði mér eitt sinn vinnu á Astro yfir verzlunarmannahelgi, náði að hala inn svona 20 þúsund kalli og veistu hvað :) :) ...Ég fékk borgað í klinki og sjaldan verið jafnánægð með útborgun. Fékk afhent launin í Coca Cola pappamáli og það sat í hásæti á náttborðinu mínu eftir það..

    By Anonymous Anonymous, at 6:10 PM  

  • Ég held ég hafi séð svona klink teljara í safeway á broadway/mcdonald

    By Anonymous Anonymous, at 8:25 AM  

  • Bara að biðja um það Sigga sæta - komnar nýjar myndir ;)

    kv. Brynja

    www.barnanet.is/armannbjarni/

    By Blogger Brynja, at 12:01 PM  

  • Glæsilegt Brynja, ég beint þangað :)

    Já klinkvélin í Safeway tekur sko gjald fyrir að telja klinkið manns. Já, ekkert er ókeypis í lifinu hehe.

    By Blogger Sigridur Ros, at 3:57 PM  

  • Hundur, Hundur muahahaha!!!

    By Blogger Kolla, at 8:14 PM  

Post a Comment

<< Home