Sigga Rós og Hjalti

Thursday, October 12, 2006

Íslensk einkenni

Merkilegt hvað manni finnst alltaf gaman að fá hrós! Ein skosk sem er með mér í tíma var að hrósa enskunni minni, sagði að hreimurinn minn væri mjög "subtle and sweet." Hmmmm, veit nú ekki um það. Yfirleitt þegar maður þarf að tala hér á opinberum vettvangi (sem sagt í tíma!), þá breytist tungan á manni í sandpappír og maður hljómar eins og kraftakall í keppninni um sterkasta mann heims......"jess, æ em æslandik end æ komm fromm vækings!" En dulinn og ljúfur hreimur hljómar vel i mínum eyrum hehe, þetta kom sko frá þessari skosku, sem by the way er ekki með dulinn hreim!
Eeen ég er Íslendingur og stolt af því :)
SRS

4 Comments:

  • Ég hef stundum farið yfir um á íslenskum áhrifum á enskunni.

    Þegar mér er mikið niðri fyrir og þarf virkilega að útskýra eða mótmæla einhverju þá undrast ég stundum hve tómeygir bekkjarfélagar mínir stara á mig á meðan ræðunni stendur.
    Ástæðan: Ég er farin að tala íslensku án þess að gera mér grein fyrir því.

    guðrún

    By Anonymous Anonymous, at 7:14 PM  

  • Hahaha nákvæmlega lent í svipuðu. Segi oft "einmitt" og "nei" og eitthvað svoleiðis...mjög fyndið en manni liður pínu bjánalega hehe ;)

    By Blogger Sigridur Ros, at 8:33 PM  

  • þú ert nú einmitt þekkt fyrir að vera "subtle and sweet" Sigga mín.... ;)

    By Blogger Brynja, at 7:02 PM  

  • Nákvæmlega það sem ég hugsaði Brynja hehe ;)

    By Blogger Sigridur Ros, at 11:07 PM  

Post a Comment

<< Home