Sigga Rós og Hjalti

Tuesday, October 03, 2006

Flugferðir

Jæja, þá erum við búin að bóka flugið frá Íslandi í janúar. Skólinn byrjar ekki fyrr en 8. janúar þannig að við ætlum að nýta hvern lausan dag á Íslandi og fljúga út til Boston þann 7. jan. Markmiðið er að ná þrettándabrennu heima, dressa sig upp sem púki og syngja með álfum og öðrum kvikindum mjéhjéhjé :) Vitum ekki enn hvenær við komum heim í desember. Hjalti þarf að taka eitt próf og það er ekki búið að birta próftöfluna, þannig að við verðum bara að bíða róleg. Eigum samt flugmiða heim frá Boston í desember, erum bara að bíða eftir töflunni til að vita hvort við þurfum að breyta miðanum eitthvað. Fyrr en varir verður komið jólafrí!
Kv.SRS

3 Comments:

  • Hlakka til að fá ykkur heim og eyða jólunum með ykkur áður en bæði ég og þið farið aftur út.

    By Anonymous Anonymous, at 11:02 PM  

  • Hlökkum sömuleiðis til að koma heim og éta á okkur gat um jólin :)

    By Blogger Hjalti, at 12:45 AM  

  • Frábært að þið getið skroppið heim um jólin :)

    By Blogger Brynja, at 3:08 PM  

Post a Comment

<< Home