Helgin
Veðrið hér á haustdögum er búið að vera alveg frábært. Þvílík blíða búin að vera, sól og yndislegt veður. Mjög heitt, oft um 18 stiga hiti. Við erum alltaf að kafna úr hita hér í íbúðinni okkar! En þetta er ótrúlegt veður, kallast held ég Indian summer, því það er mjög heitt og lítið búið að rigna. Trén eru farin að skipta litum, mjög fallegt að horfa út um gluggann hjá okkur og horfa yfir allan gróðurinn fallega rauðan eða gulan.
Helgin var ánægjuleg. Hittum Chris á föstudagskvöldið á Commercial Drive. Fórum með honum og nokkrum vinum þeirra á portúgalskan klúbb þar sem við fengum m.a. frábæran mat.....saltfisk og lúðu mmmmmmm :) Í gærkvöldi komu Guðrún, Njörður og Dagmar svo til okkar og auðvitað var étið hehe. Gerum greinilega ekkert nema að éta hahahaha.
Ég skellti mér í klippingu áðan. Hárið á mér búið að vaxa ansi hratt síðan ég kom út og ekki veitti nú af að klippa örlítið af því. Fannst að vísu pínu fyndið að klipparinn var miðaldra kall með bumbu (fór sko samt á ekta hárgreiðslustofu hehe). Hann var ágætur, klippti að vísu mun meira en við töluðum um.....5 cm breyttust skyndilega í 15-20!!! Hann lét mig líka standa þegar hann klippti mig, haha held ég hafi aldrei staðið þegar ég er í klippingu hihi. Svo misskildi hann aðeins að ég vildi svona styttur í hárið og tók bara þeim mun meira aftan af því hehe. En þetta er ágætt, fínt að stytta það aðeins. Þarf samt aðeins að venjast því, búin að vera með hárið sítt svo lengi.....var alltaf að safna fyrir bryllup hehe. En change is good, ekki satt ;)
Kv.SRS

2 Comments:
Bíddu bíddu...
Hva...
Bara búin að ditcha mig???????? Ég er búin að vera að bíða eftir því að þú bæðir um aðra klippingu..
Maður er bara sár og svekktur
Vil fá mynd af stutta hárinu!
guðrún
By
Anonymous, at 7:08 PM
haha já mín laumaðist fram hjá Salmo Court stofunni hehe. Stytturnar voru nú samt ekkert miklu betri hjá þessum gaur hehe eeeeen línan fór í rétta átt mjéhjéhjé!
Þetta hljómar allt eins og ég sé barasta komin með drengjakoll....ekki alveg svo stutt hárið, nær enn niður fyrir axlir hehe.....var bara orðið svo helv. sítt, náði næstum niður á rass haha þannig að 20 cm ryðja því ekki upp fyrir axlarhæð ;)
By
Sigridur Ros, at 8:16 PM
Post a Comment
<< Home