Sigga Rós og Hjalti

Friday, September 22, 2006

Soccer moms

Á fimmtudags eftirmiðdögum sæki ég námskeið sem fjallar um Gifted learners, eða eins og það er þýtt á vísindavef HÍ....bráðger börn (já undarlegt orð þykir mér!). Í þessu námskeiði eru 10 manns, allt konur eins og gerist ansi oft í menntunarfræðum :) Fjórar þessara kvenna vil ég kalla "soccer moms." Þær eru svona ekta týpan af soccer mom, þið vitið, þessum sem maður sér í sjónvarpinu. Þær mæta stundvíslega, eru nýkomnar úr rúmlega árslöngu fæðingarorlofi og kynna sig til leiks sem full time moms eða teacher and a full time mom, tala mikið um börn og buru og það sem fer mest í taugarnar á mér, þær segja alltaf ahaaa og hhhhmmm með jánki þegar kennarinn er að tala og segja frá! Síðan er svo ansi skemmtilegt við þessa tíma að við skiptumst á að koma með svona eitthvað snarl til að japla á í tímunum. Í síðustu viku kom einmitt ein soccer mom með þvílíka veislu, litlar sætar djúsfernur ofl og allt var mjög huggulega fram borið auðvitað. Ég kom með snakk í gær. Auðvitað þurfti ég að koma með litlar sætar djúsfernur (bölvaði helv. djúsnum þegar ég labbaði í 20 mín með allt góssið í tímann) og svo ákvað ég að leika á soccer mömmurnar og koma með íslenskan harðfisk hehe! Viti menn, þær þorðu ekkert að smakka hahahaha, en hinar (þessar ekki soccer moms) þær smökkuðu og þeim fannst þetta rosalega gott. En ansi hefði verið gaman að sjá þær smakka...usss algjörir ræflar hehe.
En annars er þetta mjög áhugaverður og skemmtilegur kúrs. Í lok námskeiðs mun ég einmitt halda kynningu á Reggio Emilia aðferðinni sem er upprunin frá Ítalíu. Mjög spennandi og ágætis vinnufélagi.....stelpa frá Kóreu sem finnst harðfiskur góður ;) Og já, börn sem eru gifted eru með greindarvísitölu upp á 130 og hærra....við hin erum bara í hundraðinu ;)
Kv.SRS

2 Comments:

  • Var ekki Forest Gump með greindarvísitöluna 70? Ef maður er venjulegur með 100 þá er maður ekkert svo langt frá því að vera eitthvað furðulegur...eitt til tvö högg í hausinn og maður er kominn niður í 70...

    By Anonymous Anonymous, at 10:37 AM  

  • Haha jú jú Daði minn, 70-79 er víst á mörkum greindarskerðingar. Meðalgreind er 90-109, svo jú það er stutt á milli :)

    By Blogger Sigridur Ros, at 5:29 PM  

Post a Comment

<< Home