Sigga Rós og Hjalti

Friday, September 29, 2006

Hvað er frétta?

Já það gerist nú ekki margt markvert í lífi námsmanna í Kanada. Skólinn gengur sinn vanagang, nóg af verkefnum og lestri til að stytta sér stundir hehe. Við gerum nú ekki mikið annað en að fara í skólann og lesa okkur til fróðleiks. Held að heilinn hafi stækkað um a.m.k. þrjú númer eftir veruna hér hehe. Stundum finn ég brunalykt og vara Hjalta þá við því að hugsa svona mikið svo brunakerfið í blokkinni fari ekki í gang hahahaha. En annars er þetta blessaða brunakerfi alltaf að fara í gang og yfirleitt er aldrei neinn eldur!!! Maður verður að hlunkast niður brunastigann héðan af 9.hæðinni og bíða svo fyrir utan eftir slökkviliðinu sem kemur með sírenur og læti til að slökkva á kerfinu. Spurning hvort þetta gerist sjálfkrafa í blokk sem er full af sí-lærandi stúdentum sem rýkur úr hausnum á hahahahahaha.
Síðast var að vísu eitthvað smá í einhverju rafmagni eða álíka og það kom mikill reykur sem varð til þess að setja kerfið á fullt. Auðvitað fer maður nú alltaf út þegar þetta gerist, en sumir hanga inni hjá sér og svo sér maður þá kíkja út um gluggann, stinga hausnum á milli gardína en þetta er mjög augljóst þegar maður stendur niðri og horfir á blokkina, sérstaklega í myrkri hehehe. En það víst hægt að sekta mann ef maður fer ekki út.....þannig að við förum alltaf út.
En það er kominn föstudagur og framundan er helgi (þó ekki Sigurðsson hahahaahahaha). Kíkjum á Chris í kvöld og svo eru Guðrún og Njörður væntanleg í mat á morgun.
Kv. SRS

P.S. Biðst afsökunar á ömurlegum bröndurum og aulahúmori.....spurning hvort þetta séu merki þess að læra yfir sig mjéhjéhjé!

1 Comments:

  • ja það er greinilega ekki correlation milli heilastærðaraukningar og bætts húmors :/

    sjáumst á morgun

    By Anonymous Anonymous, at 2:55 AM  

Post a Comment

<< Home