Próf og ferðalag framundan!
Hjalti fer í síðasta prófið sitt eftir tvo tíma. Eftir það tekur svo við andstyggilega leiðinlegt ferðalag til Íslands....sko ekkert leiðinlegt að fara til Íslands, hef bara grun um að langa ferðalagið verið hálf fúlt! Fljúgum kl 22:40 í kvöld og eigum að lenda að staðartíma í Toronto um kl 6 í fyrramálið (er sirka 5-6 tíma flug þangað). Þar skiptum við um vél og fljúgum til Boston, lendum um hádegisbilið og bíðum þar í dágóða stund þar til Íslandsvélin fer í loftið um kl 20 annað kvöld! Þetta allt saman þýðir sem sagt......lending í Keflavík snemma á laugardagsmorgni! Erum með góðar bækur, spil og yatzi til að drepa tímann ;)
Annars er ég í skýjunum núna. Var að fá út úr einum kúrsinum mínum, fékk hæstu einkunn sem ég hef fengið í náminu hérna úti eða 97% Ekki slæmt að fá 9,7 út úr þessu öllu saman. Þetta var líka skemmtilegasti kúrsinn minn og með þeim allra bestu sem ég hef tekið í náminu. Varð bara aðeins að monta mig....ég veit ég er sjálfhverfur egóisti hehehe...svona fer fyrir manni þegar maður er farinn að senda myndir af sjálfum sér í jólakortunum múhahahahaha ;)
Jæja, nóg komið af monti í bili...betra að vera hógvær og halda sér niðri á jörðinni.
Læt fylgja með nokkrar myndir frá síðustu conference í kúrsinum góða. Var alveg hrikalega skemmtilegur kúrs, krefjandi og áhugaverður :)
Sjáumst á Íslandi dýrin mín góð.
Kv. Sigga montprik/lofthæna
Lynn, Renira frá Belíz, ég, Ami frá Kóreu og Marion kennarinn minn
Ami, Krista og ég að gúffa í okkur kræsingum. Ami og ég unnum saman að veggpsjaldinu góða.
Maðurinn fyrir aftan okkur er ekki jólasveinninn!!!! Þetta er formaður samtaka bráðgera barna í BC! Hann er samt alveg eins og jólasveinn...svo talar hann með breskum hreim-bara snilld!
Annars er ég í skýjunum núna. Var að fá út úr einum kúrsinum mínum, fékk hæstu einkunn sem ég hef fengið í náminu hérna úti eða 97% Ekki slæmt að fá 9,7 út úr þessu öllu saman. Þetta var líka skemmtilegasti kúrsinn minn og með þeim allra bestu sem ég hef tekið í náminu. Varð bara aðeins að monta mig....ég veit ég er sjálfhverfur egóisti hehehe...svona fer fyrir manni þegar maður er farinn að senda myndir af sjálfum sér í jólakortunum múhahahahaha ;)
Jæja, nóg komið af monti í bili...betra að vera hógvær og halda sér niðri á jörðinni.
Læt fylgja með nokkrar myndir frá síðustu conference í kúrsinum góða. Var alveg hrikalega skemmtilegur kúrs, krefjandi og áhugaverður :)
Sjáumst á Íslandi dýrin mín góð.
Kv. Sigga montprik/lofthæna
Lynn, Renira frá Belíz, ég, Ami frá Kóreu og Marion kennarinn minn
Ami, Krista og ég að gúffa í okkur kræsingum. Ami og ég unnum saman að veggpsjaldinu góða.Maðurinn fyrir aftan okkur er ekki jólasveinninn!!!! Þetta er formaður samtaka bráðgera barna í BC! Hann er samt alveg eins og jólasveinn...svo talar hann með breskum hreim-bara snilld!

2 Comments:
Ég hélt nú að ég væri í námi með mestu nördum í heimi...en miðað við þessar myndir þá eru samnemendur þínir fjandi nörralegir líka. Pils, háir sokkar og adidas strigaskór???
En var bara boðið uppá vínber í þessari samkomu? Ekkert nema vínber þarna á diskunum hjá ykkur... :D
Kv. Dadi
By
Anonymous, at 1:17 AM
Til hamingju med 9,7 ekkert smá flott. Hafid thad svo gott á Íslandinu og látid dekra vid ykkur. Knús Hanna
By
Anonymous, at 9:15 PM
Post a Comment
<< Home