Winter Wonderland
Já það má með sanni segja að við búum í Vetrar undraríki þessa dagana. Það er búið að snjóa og snjóa síðan á laugardag og m.a.s. var sagt í fréttunum í gær að þetta væri met í snjókomu! Já, hér eru ekki einungis sett met í rigningum heldur líka snjókomu! Það er því ábyggilega meiri snjór en á Íslandi núna hehe ;) Kuldaboli er líka á sveimi -7 til -11 stiga frost og með vindkælingu er þetta eins og -19 gráður úff úff. Það er sem sagt hálka líka svo nú er bara að rifja upp hina gömlu góðu íslensku hálkugöngu!
Annars fylgdi þessum snjó ekki eintóm gleði. Rafmagnið fór af síðastliðna nótt og við vorum rafmagnslaus til klukkan 16 í gær. Íbúðin dimm og ísköld. UBC var lokað og ekki margir voru á ferli. Aumingja trén þola ekki svona mikinn snjó og greinarnar brotnuðu og rifu með sér rafmagnslínur. UBC campus var þó ekki eini staðurinn þar sem rafmagnið fór af. North og West Vancouver eru held ég enn rafmagnslaus og einhverjir misstu rafmagn í Surrey.
En svo skemmtilega vildi til að vatnsbanninu var aflétt í gærkvöldi. Nú megum við sem sagt drekka vatnið án þess að sjóða það. Var orðið frekar mikið ástand í gær þegar ekkert rafmagn var til staðar til þess að sjóða vatnið....fjúff eins gott að þetta rafmagnsleysi varði ekki lengi.
Snjórinn er samt fallegur, þetta er sannarlega Winter Wonderland....held að við munum halda snjónum í nokkra daga í viðbót....kuldi framundan.

3 Comments:
vá þetta er nú bara meiri snjór en ég hef séð lengi á Íslandi. Allavega er varla búið að vera snjór á Selfossi í vetur þó að það sé allt á kafi í Rvk.
kv.Herdís
By
Anonymous, at 10:36 PM
Mjög jólalegt og flott - hérna eru núna bara gráir skaflar hér og þar - en þetta var nú næstum því svona þegar maður vaknaði á sunnudagsmorgni fyrir 2 vikum...
Sigga er mjög vígaleg með snjóboltann - fékk Hjalti hann nokkuð í hausinn???
By
Brynja, at 7:50 PM
Hahahaha auðvitað var boltaling kastað í átt að myndatökumanninum...hvað annað hehehe. Ohh ég er svo mikið hrekkjusvín!!!
Annars var ein stelpa frá Belíz að segja mér að maðurinn hennar var að sjá snjó í fyrsta skipti. Hann ákvað að búa til snjóbolta og kasta í konu sína. Greyið hafði aldrei áður búið til snjóbolta svo hann hnoðaði og hnoðaði boltann og kastaði svo í konuna sína og hitti hana beint í nefið! Snjórinn var svona blautur og góður snjóboltasnjór....kallinn hnoðaði svo vel að stelpugreyið hélt hún væri nefbrotin...sagði að þetta hefði verið eins og að fá grjót í sig!!! Aumingja kallinn hennar var miður sín, áttaði sig engan veginn á eiginleikum þessa hvíta efnis!
Kv. SRS
By
Sigridur Ros, at 8:29 PM
Post a Comment
<< Home