Sigga Rós og Hjalti

Sunday, November 26, 2006

Snjókorn falla

Það er snjókoma!!! Já, snjókoma í rigningarveldinu Vancouver. Æðisleg stór og falleg snjókorn sem falla beint niður! Ekta jólasnjór....orðið jólalegt um að litast hér á stúdentagörðunum. Ég var eins og lítill krakki að labba heim áðan, horfði upp í loft og opnaði munninn haha ;) Krakkarnir skríkja af gleði og foreldrarnir með. Hef ekki mikla von um að snjórinn muni stoppa lengi...en það er gaman á meðan það er ;) Nú er bara að kveikja á jólatónlistinni og fá smá jólastemmara í sig.

Kv. Sigga snjókarl

2 Comments:

  • Til lukku með snjóinn! Hérna í Lúxinu er jólastemmingin í sögulegu lágmarki, 14°C og gengur á með skúrum. Við létum okkur samt hafa það að henda upp smá jólaskrauti í gær og ég er ekki frá því að við höfum náð upp einhverri jólastemmingu.

    By Anonymous Anonymous, at 9:05 AM  

  • Það er nú búinn að vera snjór hérna heima í viku núna - þvílíkir skaflar og alls staðar krakkar með snjóþotur :)
    Er bara komin í svolítið jólaskap en ég set ekki upp neitt skraut fyrr en á fyrsta í aðventu... frekar fyndið samt að sjá aðventuljós út um allan bæ í dag - fullt af fólki sem heldur greinilega að það sé fyrsti í aðventu af því að það eru 4 vikur til jóla ;)

    By Blogger Brynja, at 9:54 PM  

Post a Comment

<< Home