Gæludýrin
Jahááá....svona fór um sjóferð þá! Meirhlutinn bara sprunginn!!!
En yfir í annað! Ég hef undanfarna daga verið með tvö stór gæludýr á heimilinu. Þau krefjast mikils af manni, bæði líkamlega og andlega, auk þess að taka sérlega mikið pláss í stofunni! Gæludýrin bera nafnið Olli og Emma og hafa þau reitt mig til reiði síðustu daga sem og aukið á hamingju heimilismanna! Þessi gæludýr eru græn og hvít að lit og ná mér upp að nafla!

Hér má sjá mynd af gæludýrum Frú Sigríðar!

Eins og sjá má eru þetta skilaverkefnin mín í skólanum. Það var haldið svona conference síðasta daginn í tveimur kúrsum sem ég er í. Að vísu féll annar kúrsinn niður vegna rafmagnsleysis, þannig að Olli kallinn (til vinstri á myndinni) gat ekki fengið að hitta hina vini sína og sat því fastur heima hjá mér. Tekin var mynd af Olla mínum og hún send til kennarans. Emma kellingin fékk hinsvegar að sýna sig í gær á "mikilli" mini ráðstefnu um bráðger börn. Féll hún svakalega vel í kramið hjá samnemendum mínum, kennaranum og öðrum gestum sem sóttu mini ráðstefnuna okkar. Þar á meðal var formaður félags bráðgera barna í BC!
Ég er sem sagt næstum því búin. Fór í síðasta kennslutímann minn í gær (með Emmu auðvitað). Á síðan eftir að skila inn einni ritgerð, sem mun fjalla um hvernig skólinn getur komið til móts við börn af erlendum uppruna. Hjalti er í prófi þessa stundina og svo byrjar meiri prófatörn hjá honum í næstu viku.
Olli og Emma munu því sjá mér fyrir félagsskap í ritgerðaskrifum.
Kv. SRS
P.S. Svona fyrir áhugasama....Olli minn fjallar um Olweusar verkefnið gegn einelti og rannsóknir sem sýna fram á að það virkar og hvað þetta prógram felur í sér. Emma mín fjallar hinsvegar um ítalska kennsluaðferð Reggio Emilia og hvernig hún getur haft áhrif á menntun ungra, bráðgera barna.

6 Comments:
Vá þetta er bara flott hjá þér :)
Fæ endilega að koma og klappa þeim bráðum
guðrún
By
Anonymous, at 7:24 AM
Flott hjá þér nafna. Þú verður alger súper kennari þegar þú kemur heim. Hlakka til að sjá ykkur.
kv. Sigríður
By
Anonymous, at 6:08 PM
Vá glæsilegt Sigga mín.
Greinilegt að þú hefur lært heil mikið í KHÍ. Þetta minnir mig svolítið á þegar þú sagðir söguna um Fúsa..... segi ekki meira.
By
Anonymous, at 7:25 PM
Takk fyrir hólið góðu konur :)
Já, Kolla Fúsi kallinn sló nú i gegn á sínum tíma....spurning um að endurvekja Fúsa í Kanadískri útgáfu...svona síðasta daginn í náminu hehehe ;) Yrði kannski ekki Fúsi fangi heldur Pete the prisoner mjehjehje!
Styttist í heimför....ohh hvað það verður gaman að hitta alla ;)
Kv. SRS
By
Sigridur Ros, at 4:03 AM
Flott verkefni hjá þér Sigga mín.
Var einmitt að rifja upp flottu sýningarnar sem við settum upp í Kennó ;-)
Farið þið sem sagt til Íslands um jólin...hvaða heimilisfang hafið þið á Selfossi?
Kær kveðja frá DK,
Dóra Hanna
By
Anonymous, at 9:47 PM
Takk fyrir það Dóra Hanna.
Jebbs Ísland er málið um jólin ;)
Heimilisfangið hjá okkur verður
Heiðmörk 1A, 800 Selfoss.
By
Sigridur Ros, at 11:40 PM
Post a Comment
<< Home