Sigga Rós og Hjalti

Tuesday, December 05, 2006

Draumajobbið!

Heldur betur vinstri beygja í sveitarfélaginu okkar um þessar mundir!
Held að ég sé búin að uppgötva draumastarfið...eða svona hér um bil.... held að málið sé barasta að gerast bæjarstjóri einhvers staðar enda miklar líkur á því að ná sér í þessi dýrindis biðlaun!!!
Fannst frekar súrt að lesa um bæjarstjórana þrjá sem eru á launum í sveitarfélaginu (frétt rúv hér). Já, það ætti heldur betur að vera hægt að stýra bænum hahahaha ;) Uss, ég væri nú ekki góð í svona stjórnmálum....ég yrði svo nísk að ég myndi ekki vilja losa mig við bæjarstjórann svo hann gæti kreist út úr manni biðlaun....ég myndi bara halda honum og láta viðkomandi vinna hahahaha...jafnvel þó það væri einhver úr andstæðum flokki muhahahahaha.
Æ, maður verður bara reiður. Hugsa sér hvað 20 millur geta gert mikið í sveitarfélaginu...finnst bara að peningunum eigi að vera varið í annað en að borga biðlaun og hana nú!!!
En þetta er mín skoðun ;)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home