Sigga Rós og Hjalti

Wednesday, January 10, 2007

Brjálað veður!

Já það er ekki eins og maður hafi komið beint inn í veðursældina hérna úti. Í gær var auðvitað rigning og svo kom þetta þvílíka rok. Ég hélt að á tímabili ætluðu rúðurnar í íbúðinni inn og færði mig svona bara aðeins! Niðri í bæ voru víst veðurlæti. Stanley Park var lokað sem og Lions Gate brúnni. Nokkur tré í Stanley Park rifnuðu upp og ein kona varð undir stóru tré sem rifnaði upp í einni vindhviðunni. Í nótt lægði síðan vindinn en hvað haldið þið að hafi blasað við þegar við kíktum út um gluggann í morgun........jú jú alhvít jörð!!! Já, það snjóar hér í Vancouver og spáð er kulda framundan. Spurning hvort við höfum dregið kuldakastið með okkur ;)

1 Comments:

  • gott að vita að það eru fleiri staðir í heiminum en Svíþjóð sem eru með vont veður. Hér er búið að vera íslensk rigning og rok síðustu daga. 60.000 heimili eru ramagnslaus eftir síðustu nótt en enginn snjór:(

    By Anonymous Anonymous, at 12:06 AM  

Post a Comment

<< Home