Sigga Rós og Hjalti

Tuesday, January 09, 2007

Komin heim í rigninguna!

Þá erum við komin heim til okkar í Vancouver eftir langt og mikið ferðalag....Boston-Toronto-Vancouver! Flugum fyrst með Icelandair til Boston. Fengum úthlutað Saga sætum. Héldum að við hefðum verið svo svaðalega heppin að fá uppfærslu á saga class...kannski vegna tíðra flugferða með félaginu hehe. En nei ekki vorum við það heppin, fengum bara sætin en svo var dregið fyrir tjaldið fyrir framan okkur. Við horfðum því á blátt tjald alla 5 og hálfa tímann! Spurðum flugfreyjuna hvort við gætum séð sjónvarp úr okkar sætum en fengum þá aldeilis hæðnissvar tilbaka um að það væru nú barasta margir í vélinni sem vildu ábyggilega skipta við okkur til að ná svona góðum sætum! Lá við að hún segði okkur að vera bara þakklát fyrir að fá yfir höfuð að fá að fljúga með!!! Við áttum nú ekki til orð yfir þessu hjá stelpuálkunni. Hefðum kannski átt að benda henni á að maður getur bara sagt nei því miður, þessi sæti bjóða ekki upp á það. Ekki vorum við dónaleg við hana, uss ég er hrikalega fúl. Ég segi oft við Hjalta í gríni þegar hann kvartar yfir litlu fótaplássi....vertu bara feginn að fá að fljúga með...mikið að maður er ekki látinn sitja á vængnum og fá hressa vinda framan í sig!!! Icelandair hefur allaveganna hrapað mikið í áliti hjá mér við svona leiðindakellur.
Hin flugin tvö voru bara fín. Fórum í eitt stutt flug frá Boston til Toronto. Lítil vél, svona tvö sæti sitt hvoru megin við ganginn en mikið rými fyrir fætur og svo er svona snerti-sjónvarpsskjár á öllum sætunum þar sem maður getur valið sjálfur myndir og þætti. Frábært ;) Hitt flugið var lengra, Toronto-Vancouver en það var HRIKALEGA mikil ókyrrð og ég var að drepast úr hræðslu. Flugfreyjurnar sögðu í skyndi öllum að spenna sig vel í beltin og skorða handfarangur svo enginn myndi meiðast, síðan stukku þær inn til að spenna sig og svo byrjaði hristingurinn. Mér leið eins og tröllabarn væri í flugvélarleik með vélina ;) En þetta jafnaði sig, og við náðum að lenda örugglega. Ekki góð tilfinning fyrir flughræddar manneskju eins og mig sem sitja með tárin í augunum og halda að flugvélin sé að hrapa!!!
En hér erum við nú komin. Keyrðum heim til Chris í gær og létum hann fá skyrið sem við laumuðum til landsins muhahahahahaha. Síðan var ansi ljúft og gott að sofna í gærkvöldi....ekki frá því að við værum með smá flugriðu hahahahahaha ;)
Kv. SRS

1 Comments:

  • Gott að heyra að þið eruð komin heilu og höldnu þrátt fyrir að hrist hafi verið upp í ykkur!
    Það hefði nú verið gaman að hitta ykkur meira en Siggu í mýflugumynd en við bætum bara úr því þegar þið verðið komin heim aftur - það er ekki svo langt í það :)
    B)

    By Blogger Brynja, at 9:23 AM  

Post a Comment

<< Home