Sigga Rós og Hjalti

Saturday, January 13, 2007

Canadian Job!

Frú Sigríður er komin með vinnu!!!! Sótti um vinnu hjá UBC Daycare um daginn og fór í viðtal til þeirra á miðvikudag. Þar var ég spurð margra spurninga, um kosti mína og galla og þurfti svo að segja hvað ég myndi gera í þremur aðstæðum t.d. ef börnin væru með hávaða inni eða væru að rífast um dót. Mér leið nú pínu asnalega þar sem ég sat og rausaði út úr mér hvað best væri að gera. Um kvöldið hringdi kellan í mig og bauð mér starfið og ég þáði það auðvitað. Ekkert svaðaleg hlutverk sem ég fæ hehe. Kallast Parent Assistant. Vinn þrisvar í viku á stuttum morgunvöktum og mitt starf felst í því að finna til morgunmat handa krökkunum og leyfa þeim að hjálpa mér við það, láta þau borða og ganga frá og svo lesa örlítið eða leika við þau í lokin. Vona bara að matseldarhæfileikar mínir dugi til......þarf nefnilega að baka pönnukökur eheemmm!!! Þetta er dagvistun fyrir 3-5 ára gömul börn og er bara í 5 mín fjarlægð frá blokkinni okkar. Krakkarnir eru ekkert smá sæt, yndislega krúttleg og dúlluleg að tala ensku á fullu. Æ manni finnst svo sætt þegar krakkar tala á erlendu tungumáli. Þetta verður bara gaman. Ég byrja á mánudaginn og hlakka bara til að fá aðeins reynslu í einhverju allt öðru en ég er vön. Kaupið er ekkert svakalegt en ég er nú ekkert að rembast í einhverjar hálaunaðar vinnur, bara prófa eitthvað nýtt. Verður fínt að vera í þessu með skólanum, hva maður getur alltaf notað aurinn í að borga vikulegu innkaupin í Safeway mjéhjéhjé :)
Ég er búin að þurfa að skila inn allskyns pappírum út af þessari vinnu. Fór í criminal record check, svona til að athuga hvort ég sé stórglæpon hér í Kanada, þarf læknsivottorð og svo ýmislegt fleira. Aðeins meira umstang en heima, þar er nóg að gefa bankareikninginn og búið! Kannski ekkert vitlaust að taka upp svona sakavottorðsdæmi í skólum heima....svona til ógeðismenn geti ekki valsað inn í skóla eða leikskóla. Þetta er allaveganna ágætis þjálfun og reynsla að fara í gegnum þetta allt saman.

Það er ennþá snjór og ógeðslega kalt úti. Kuldaboli nístir inn að beini, nær að smjúga sér inn undir úlpurnar og vettlingana og kitla húðina ohhh það er hrikalega kalt. Frekar óvenjulegt veður held ég bara. Jæja það rignir ekki á meðan ;)

Ég sendi kvörtunarbréf til Icelandair á þriðjudagsmorgun. Hef ekkert svar fengið til baka frá þeim. Fyrir vikið verð ég enn fúlli yfir ömurlegri þjónustu. Uss hefði átt að skrifa að ég héti Pamela Johnsson og væri fúll Kanadamaður eða Bandaríkjamaður. Viss um að þeir hefðu sent um hæl sleikjubréf og afsökun svo útlendingurinn færi ekki eitthvað annað. Við Íslendingarnir höfum hvort sem er ekkert val svo maður er bara hunsaður. Ég verð þeim mun leiðinlegri neytandi og nýti mína opinberu vefsíðu til að lýsa skoðun minni.....held að þeir verði að athuga stefnuna sína um þjónustuna sem er ávallt í fyrirrúmi!!!! Og ættingjar sem lesa þetta og vinna hjá Icelandair....so sorry við erum bara enn pínu fúl því við leggjum ekki í vana okkar að sníkja sæti á Saga Class eða vera leiðinleg við flugfreyjur!

Jæja nú er maður búinn að fá tilnefningu sem nöldrari ársins 2007....spurning hvort maður eigi ekki bara að sækja um vinnu hjá Neytendasamtökunum þegar maður kemur heim hahahahaha.
Jæja orðið gott raus hér. Best að rausa aðeins í kallinum til að auka líkurnar á tilnefningunni góðu muhahahahahaha.
Kv. SRS

8 Comments:

  • Verið velkomin á Kanada heimilið. Það var voðalega gaman að hitta þig Sigga. Vetrarveðrið er víst lika hér á Íslandi og spáir því að verði áfram. Á meðan spóla ég bara um á lélegu heilsársdekkjunum mínum...wohoo! vona að þú skemmtir þér vel í nýju vinnunni þinni,ekki annað hægt held ég með svona littlar dúllur.
    skrifað frá barnaspítalanum
    kveðja Berglind

    By Anonymous Anonymous, at 5:18 PM  

  • Til hamingju með vinnuna Sigga, alltaf gaman að geta fengið smá erlenda vinnureynslu í starfsreynslubankann sinn ;-)
    Ég þurfti einmitt að fara á löggustöðina hér í Árósum til að fá sakarvottorð til að skila inn ásamt bankareikningnum og skattakortinu þegar ég byrjaði í minni vinnu.
    Nauðsynlegt að taka þetta upp á Íslandi...ertu ekki svo mikið í pólitík Sigga mín...kemurðu þessu ekki bara á þegar þú flytur aftur til Íslands?
    Kær kveðja úr "storminum" (bara ekta slæmt íslenskt rok) og rigningunni í DK...bíðum enn eftir vetrinum (annars er ég ekkert að bíða en börnin kannski einna helst ;-0
    Dóra Hanna

    By Anonymous Anonymous, at 6:33 PM  

  • Til hamingju með nýju vinnuna Sigga. Ég held að þú þurfir ekkert að hafa áhyggjur af pönnunkökunum. Ef þær eru góðar á bragðið er krökkunum alveg sama hvernig þær eru útlits :)
    Kveðja Vala

    By Anonymous Anonymous, at 12:18 PM  

  • Til hamingju með nýju vinnuna Sigga!

    Kv. Magga :)

    By Anonymous Anonymous, at 3:19 PM  

  • Mæli með að þú fáir uppskriftina frá ömmu Siggu að pönnsunum, þær voru alltaf helvíti góðar...

    Eða eru þetta kannski svona 2 tommu þykkar kanakökur með smjöri og sírópi? Góður og hollur morgunmatur?

    En til hamingju með starfið!

    By Anonymous Anonymous, at 3:28 PM  

  • Takk fyrir commentin öll sömul. Þetta verður eflaust spennandi verkefni. Æfði mig nú um helgina í pönnukökunum...sko boðið er upp alvöru amerískar með sýrópi!!! I know...ekki mjög lystugt!
    Jæja fyrsti dagurinn framundan....verður ábyggilega margt að segja frá síðar.
    Kv.SRS

    By Blogger Sigridur Ros, at 3:53 PM  

  • til hamingju med vinnuna. vonandi hefur Hjalti ekki hlotid ylla af tegar tu varst ad testa pönnukökurnar a honum:)hehe

    By Anonymous Anonymous, at 4:43 PM  

  • hehe bara mallinn hans.....borðaði sem sagt yfir sig greyið mjéhjéhjé ;)

    By Blogger Sigridur Ros, at 6:31 PM  

Post a Comment

<< Home